Íslendingar vilja frekar íslenska krónu en evru

Stuðningsmenn Pírata eru helst fylgjandi upptöku evru en stuðningsmenn Sjálfstæðisflokks mest á móti því. Fleiri kjósendur Vinstri grænna vilja evru en þeir sem vilja halda íslensku krónunni.

evrur
Auglýsing

Alls segj­ast 39,4 pró­sent lands­manna vera fylgj­andi upp­töku evru sem gjald­mið­ils á Íslandi í stað íslensku krón­unn­ar, en 43,3 pró­sent eru á móti því.  Þá segj­ast 17,3 pró­sent ekki taka afstöðu til máls­ins. Þetta kemur fram í nýlegri könnun sem Gallup vann fyrir Já Ísland. Stuðn­ing­ur­inn við upp­töku evru er mestur hjá kjós­endum Pírata (86 pró­sent) en minnstur hjá kjós­endum Sjálf­stæð­is­flokks­ins (16 pró­sent).

­At­hygli vekur að fleiri kjós­endur Vinstri grænna eru hlynntir upp­töku evru sem gjald­mið­ils á Íslandi í stað íslensku krón­unnar en eru á móti því. Alls segj­ast 40 pró­sent kjós­enda þess flokks sem mælist að jafn­aði stærstur á land­inu í skoð­ana­könn­unum vera fylgj­andi upp­töku evru en 31 pró­sent eru and­vígir því. 29 pró­sent kjós­enda Vinstri grænna segj­ast ekki hafa skoðun á mál­inu.

Kjós­endur Sam­fylk­ingar (79 pró­sent) og ann­arra óskil­greindra flokka (64 pró­sent) í könn­un­inni, sem eru að öllum lík­indum Við­reisn og Björt fram­tíð, eru líka mun meira fylgj­andi upp­töku evru en á móti því. Kjós­endur Fram­sókn­ar­flokks­ins (24 pró­sent) og Flokks fólks­ins (32 pró­sent) eru hins vegar mjög ber­sýni­lega frekar á móti slíkri upp­töku en fylgj­andi henni.

Meiri menntun og hærri tekjur þýða meiri vilja til að taka upp evru

Líkt og varð­andi aðild að Evr­ópu­sam­band­inu þá er skýr munur á afstöðu milli kynja, ald­urs­hópa, eftir búsetu, tekjum og mennt­un. Þannig eru til að mynda 52 pró­sent þeirra sem eru með fjöl­skyldu­tekjur yfir einni milljón króna á mán­uði fylgj­andi upp­töku evru en ein­ungis 26 pró­sent þeirra sem eru með fjöl­skyldu­tekjur á bil­inu 400 til 549 þús­und krónur á mán­uði. Þegar nið­ur­stöð­urnar eru skoð­aðar eftir menntun kemur í ljóst að 49 pró­sent þeirra sem eru með háskóla­próf eru fylgj­andi upp­töku evru en 34 pró­sent á móti. Hjá þeim sem eru ein­ungis með grunn­skóla­próf snýst dæmið algjör­lega við. Þar eru 29 pró­sent fylgj­andi upp­töku evru en 54 pró­sent á móti.  

Auglýsing
Þá liggur fyrir að stuðn­ingur við upp­töku evru sem gjald­mið­ils er mun meiri í yngstu ald­urs­hóp­unum en á meðal þeirra eldri. Fleiri eru fylgj­andi upp­töku evru en á móti henni á meðal Íslend­inga frá 18 ára aldri og að 44 ára aldri. Mestur er stuðn­ing­ur­inn hjá yngstu ald­urs­hóp­un­um. Í ald­urs­hópnum 45-54 ára er afstaðan nokkuð jöfn, 43 pró­sent eru fylgj­andi upp­töku evru en 44 pró­sent eru á móti. Í elstu ald­urs­hóp­un­um, hjá 55 ára og eldri, er and­staðan hins vegar mest. Þar eru 34 pró­sent fylgj­andi upp­töku evru en 52 pró­sent á móti.

Stuðn­ingur við upp­töku evru er áber­andi mestur í Reykja­vík þar sem umtals­verður meiri­hluti vill taka hana. Dæmið snýst aftur algjör­lega við þegar horft er á nið­ur­stöður úr könn­un­inni á lands­byggð­inni. Utan höf­uð­borg­ar­svæð­is­ins er annar hver maður alfarið á móti upp­töku evru en ein­ungis 31 pró­sent fylgj­andi henni. Þá eru karlar mun jákvæð­ari gagn­vart upp­töku evru en kon­ur.

Nær ómögu­legt að taka upp evru ein­hliða

Evr­ópu­sam­bandið hefur tekið það skýrt fram að ein­hliða upp­taka evr­unnar yrði aldrei með þeirra sam­þykki og að upp­taka hennar yrði aldrei leyfð fyrr en eftir aðild að sam­band­inu og að sam­leitn­is­skil­yrðum upp­fyllt­um. Seðla­banki Íslands hefur auk þess kom­ist að þeirri nið­ur­stöðu, í ítar­legri skýrslu um mögu­leika Íslands í gjald­miðla­málum sem birt var 2012, að í raun séu raun­hæfir val­kostir hvað varðar gjald­miðil ein­ungis tveir: íslensk króna eða upp­taka evru með aðild að Evr­ópu­sam­band­inu.

Könn­unin var unnin fyrir Já Ísland og var fram­­kvæmd 11-24. sept­­em­ber síð­­ast­lið­inn. Um var að ræða net­könnun og úrtakið var 1.435 manns um allt land. Allir þátt­tak­endur voru 18 ára og eldri og voru handa­hófs­­valdir úr Við­horfa­hópi Gallup. Þátt­­töku­hlut­­fall var 59,5 pró­­sent.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent