„Fráleitt“ að vísa Chuong úr landi

Yfirmatreiðslumaður á Nauthóli er afar óhress með Útlendingastofnun, en nemi sem hefur verið á staðnum þarf að óbreyttu að fara úr landi. Hann segir sára vöntun á fagmanni eins og henni.

nautholl
Auglýsing

Björn Ingi Björns­son, yfir­mat­reiðslu­maður á Naut­hóli, segir í til­kynn­ingu að sú ákvörðun Útlend­inga­stofn­un­ar, að vísa Chuong Le Bui, mat­reiðslu­nema frá Víetnam, úr landi sé „frá­leit“ og í mót­sögn við þá miklu þörf sem sé fyrir faglært mat­reiðslu­fólk á Ísland­i. 

Hún er sögð nið­ur­brotin vegna máls­ins, og segir Björn það óásætt­an­legt að henni verði vísað úr landi.

Í til­kynn­ingu, þar sem hann rekur mál hennar ítar­lega, segir hann að hún sé efni­leg­asti nemi sem hann sé með í vinnu. Hann segir ákvörð­un­ina und­ar­lega þar sem nán­ast ómögu­legt sé að fá inn faglært starfs­fólk inn í mat­reiðslu­geir­ann þessi miss­er­in. Því skjóti það skökku við að vísa henni úr landi, í miðju námi.

Auglýsing

Hún er hálfnuð með lög­bund­inn náms­tíma í mat­reiðslu­tíma, en eftir laga­breyt­ingu Alþingis um síð­ustu ára­mót, þá fær hún ekki náms­manna­dval­ar­leyfi þar sem hún er í skil­greindu iðn­námi en ekki háskóla­námi eins og lögin gera ráð fyr­ir. Chuong á skyld­menni hér á landi og hefur því gott bak­land á Íslandi og Inga Lillý Brynjólf­dóttir lög­fræð­ingur hefur verið að vinna í hennar máli og hefur kært þessa ákvörðun útlend­inga­stofn­unn­ar. „Lög­unum var breytt um síð­ustu ára­mót án þess að Iðan, Mat­vís eða aðrir fag­að­ilar sem koma að iðn­mennt­un  hefðu verið látnir vita og iðn­menntun var hent út sem ástæðu fyrir náms­manna­dval­ar­leyf­i. Það er algjör­lega út í hött að ein­hver sé búin að eyða 2 árum í nám og svo sé henni hent úr landi án þess að fá að klára námið sitt . Sér­stak­lega þar sem hún er nemi í grein þar sem sár­vantar fag­menn. Hún er okkar besti nemi að öðrum ólöst­uðum og nokkuð ljóst að hér er á ferð­inni efni í frá­bæra mat­reiðslu­konu. Mér finnst þessi ákvörðun útlend­inga­stofn­unnar frá­leit og sér­stak­lega í ljósi þess að Chuong hafði í febr­úar fengið fram­leng­ingu á náms­manna­leyf­inu sínu en núna  á að senda hana heim. Í febr­úar var búið að breyta þessum lögum en þá fær hún samt dval­ar­leyfi en nú í haust þá er það aft­ur­kallað . Ég get ekki túlkað þessi lög öðru­vísi en að þau  geng­is­fella okkar iðn­menntun eins og hún sé minna virði en háskóla­gráður og ég hall­ast helst að og í raun vona að hér sé um ein­hvers konar mis­tök við laga­breyt­ingu að ræða. Mis­tök sem eru samt grafal­var­leg eins og sjá má á þessu máli og geta haft gríð­ar­legar afleið­ingar fyrir fólk sem hefur hafið nám sitt hér með rétt­mætar vænt­ingar um að fá að ljúka því. Þarna er verið að neyða þessa ungu hæfi­leik­a­ríku konu til að kasta tveimur árum af ævi sinni út um glugg­ann. Tveimur árum þar sem hún hefur lagt mjög hart að sér við að ná sínum mark­miðum og upp­fylla sinn draum um að verða mat­reiðslu­kona,“ segir Björn í til­kynn­ingu sinni.

Hann segir enn fremur að það sé erfitt að verða mat­reiðslu­maður og það kosti mikla vinnu að byggja upp þekk­ingu í fag­inu. Ekki síst þess vegna þess ákvörð­unin und­ar­leg, og algjör­lega á skjön við þörf­ina í íslensku atvinnu­lífi. „Það vita allir sem það hafa reynt að það að læra að vera alvöru mat­reiðslu­maður kostar blóð­,svita og tár.  Starfs­námið er mjög erfitt og krefj­andi og margir sem hefja það gef­ast upp. Svo ekki sé minnst á að Chuong hefur ekki íslensku sem móð­ur­mál og hefur sótt nám­skeið utan vinnu til að fá betri grunn fyrir bók­lega­námið sem fer allt fram á íslensku. Stundar hún námið sitt af alúð sam­kvæmt upp­lýs­ingum frá Mennta­skól­anum í Kópa­vogi þar sem hún er nú á sinni fyrstu önn. Hún mætir vel og er til fyr­ir­myndar enda afar ein­beitt í sínu námi. Mér finnst und­ar­legt í ljósi þess að nán­ast er ómögu­legt að fá inn fag­lærða starfs­menn í þessa grein að okkur sé nú gert að rifta lög­bundnum náms­samn­ingi sem við gerðum til 4 ára og um leið missa frá­bæran starfs­kraft sem dýr­mætur tími og vinna hefur farið í að þjálfa og kenna eins og okkur er skylt að gera þegar ein­hver skráir sig í starfs­nám hjá okk­ur. Við á Naut­hól leggjum mik­inn metnað í að útskrifa topp fag­menn frá okkur sem hafa víð­tæka reynslu og eru til­búnir í öll þau verk sem fag­lærður mat­reiðslu­maður þarf að kunna. Hefur Chuong stað­ist allar okkar kröfur og vænt­ingar um góða starfs­hætti og vinnu­brögð. Hún er okkar efni­leg­asti nemi og á fram­tíð­ina fyrir sér í þessu fagi og því er það glapræði að það skuli vera eyði­lagt með þess­ari brott­vísun og með þessum órétt­láta hætt­i,“ segir Björn.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent