Greiningar á hlutleysi og fréttaumfjöllun RÚV kostuðu fjórar milljónir

Mennta- og menningarmálaráðuneytið veitti sérstakan styrk til fjölmiðlanefndar til rannsókna í maí í fyrra. Það var í fyrsta og eina sinn sem slíkur styrkur hefur verið veittur. Nefndin ákvað að kanna hlutlægni RÚV.

rúv
Auglýsing

Mennta- og menn­ing­ar­mála­ráðu­neytið ákvað að veita fjöl­miðla­nefnd fjórar millj­ónir króna í sér­staka fjár­veit­ingu í maí 2016 til að standa straum af kostn­aði við fjöl­miðla­rann­sókn­ir. Þetta var í fyrsta og eina skiptið sem ráðu­neytið hefur veitt slíkan styrk. Þetta kemur fram í svari ráðu­neyt­is­ins við fyr­ir­spurn Kjarn­ans.

­Fjöl­miðla­nefnd hafði frjálsar hendur varð­andi fram­kvæmd og efni við­kom­andi fjöl­miðla­rann­sókna og tók ákvörðun um að láta gera tvær grein­ing­ar. Önn­ur, sem Gallup var fengin til að gera, var á við­horfi almenn­ings til hlut­lægni í frétta­flutn­ingi Rík­is­út­varps­ins (RÚV) og hin var á fréttaum­fjöllun RÚV í aðdrag­anda Alþing­is­kosn­inga 2016.

Ákvörðun um hvað var ákveðið að greina var tekin af fjöl­miðla­nefnd­inni, ekki starfs­mönnum henn­ar. Í henni sátu á þeim tíma sem ákvörð­unin var tekin þau Ingvi Hrafn Ósk­ars­son, for­mað­ur, Hulda Árna­dótt­ir, vara­for­mað­ur, Vil­hjálmur H. Vil­hjálms­son, Arna Schram og Sal­vör Nor­dal. Sam­kvæmt upp­lýs­ingum frá Elfu Ýr Gylfa­dótt­ur, fram­kvæmda­stjóra fjöl­miðla­nefnd­ar, var búið að ræða mögu­leik­ann á umræddri fjár­veit­ingu fyrr á árinu 2016.

Mennta- og menn­ing­ar­mála­ráðu­neytið er með það til athug­unar hvort og hvernig væri best að standa að rann­sóknum á þessu sviði til fram­tíð­ar.

Fram­kvæmd örfáum vikum eftir Panama­skjölin

Í kjöl­far þess að nið­ur­staða grein­ing­anna voru gerðar opin­berar í vik­unni sendi RÚV frá sér yfir­lýs­ingu þar sem stofn­unin gerði alvar­legar athuga­semdir við þær. Í frétt á vef RÚV sagði að rang­­færslur í taln­ingu og sú grunn­­for­­senda úttekt­­ar­innar að snið­­ganga hina eig­in­­legu kosn­­inga­um­­fjöllun RÚV rýri gildið veru­­lega. „Fjöl­miðla­­nefnd hefur birt könnun um við­horf almenn­ings til hlut­lægni í frétta­­flutn­ingi vorið 2016 og grein­ingu á kosn­­inga­um­­fjöllun RÚV í aðdrag­anda Alþing­is­­kosn­­inga 2016. Rík­­is­út­­varpið fékk kann­an­­irnar til umsagnar og gerði alvar­­legar athuga­­semdir við þær báð­­ar. Þrátt fyrir það hefur fjöl­miðla­­nefnd nú ákveðið að birta þær. Rík­­is­út­­varpið birtir því athuga­­semdir sín­­ar“.

Auglýsing
Þá gerði RÚV athuga­semdir við það að könn­unin á við­horfi almenn­ings til hlut­lægni í frétta­­flutn­ingi RÚV hafi verið fram­­kvæmd á afar óvenju­­legum tíma í íslensku sam­­fé­lagi, eða í maí 2016, örfáum vikum eftir að Pana­ma­skjölin voru birt, rík­­is­­stjórn Fram­­sókn­­ar­­flokks og Sjálf­­stæð­is­­flokks féll og boðað var til kosn­­inga. „Við­horf almenn­ings til Frétta­­stofu RÚV á þeim umróta­­tímum end­­ur­­speglar að mati Rík­­is­út­­varps­ins ekki almennt við­horf almenn­ings til frétta­­stof­unn­­ar. Það vekur athygli að fjöl­miðla­­nefnd hefur ekki látið gera neina sam­an­­burð­­ar­könn­un ­síð­­an til að kanna gildi þeirrar sem gerð var skömmu eftir Pana­ma­­mál­ið.“

Afstaða fór eftir stjórn­mála­skoð­unum

Helstu nið­ur­stöður könn­unar Gallup á við­horfi almenn­ings gagn­vart hlut­lægni í frétta­flutn­ingi RÚV var sú 66,5 pró­­sent aðspurðra sögð­ust telja RÚV almennt hlut­­laust í fréttum og frétta­tengdu efni sínu. Alls sögð­ust 33,5 pró­­sent telja að RÚV væri hlut­­drægt og þar af sagð­ist 5,5 pró­­sent telja að RÚV væri að öllu leyti hlut­­drægt í fréttum og frétta­tengdu efni sínu.

Mik­ill meiri­hluti kjós­­enda Sjálf­­stæð­is­­flokks og Fram­­sókn­­ar­­flokks töldu hins vegar að RÚV væri hlut­­drægt í frétta­­flutn­ingi sín­­um. Alls sögð­ust sjö af hverjum tíu Sjálf­­stæð­is­­mönnum og tæp­­lega sjö af hverjum tíu Fram­­sókn­­ar­­mönnum að þeir hefðu þá skoð­un. Hjá kjós­­endum allra ann­­arra stjórn­­­mála­­flokka var yfir­­­gnæf­andi hluti kjós­­enda, oft­­ast vel yfir 90 pró­­sent, þeirrar skoð­unar að RÚV gæti hlut­­leys­­is.

Grein­ing Fjöl­miðla­vakt­­ar­inn­­ar/Credit­info var á fréttaum­­fjöllun RÚV í aðdrag­anda Alþing­is­­kosn­­inga 2013 og 2016. Nið­­ur­­staða hennar vegna kosn­­ing­anna í fyrra var meðal ann­­ars sú að Sjálf­­stæð­is­­flokkur og Fram­­sókn­­ar­­flokkar hafi fengið mesta fréttaum­­fjöllun og að 88 pró­­sent allra frétta sem sagðar voru af stjórn­­­mála­­flokkum í hafi hvorki flokk­­ast sem jákvæðar né nei­­kvæð­­ar. Um níu pró­­sent þeirra töld­ust jákvæðar en þrjú pró­­sent nei­­kvæð­­ar.



Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent