Benedikt Bogason hæstaréttardómari, hefur stefnt Jóni Steinari Gunnlaugssyni hrl. og fyrrverandi dómara við Hæstarétt, fyrir meiðyrði. Frá þessu greindi RÚV í kvöld, en ummælin sem málið byggir á tengjast dómi um innherjasvik og brot í opinberu starfi.
Jón Steinar fullyrðir í nýrri bók, Með lognið í fangið, að Hæstiréttur hafi framið dómsmorð á Baldri Guðlaugssyni, fyrrverandi ráðuneytisstjóra í fjármálaráðuneytinu, en hann dæmdur fyrir innherjasvik í tengslum við sölu hans á hlutabréfum í Landsbankanum.
Hæstiréttur staðfesti tveggja ára fangelsisdóm yfir Baldri vegna innherjasvika og brota í opinberu starfi. Einn hæstaréttardómari, Ólafur Börkur Þorvaldsson, skilaði séráliti og vildi láta vísa málinu frá.
Baldur var ákærður fyrir innherjasvik og brot í opinberu starfi þegar hann seldi hlutabréf í Landsbankanum 17. og 18. september 2008. Baldur var þá ráðuneytisstjóri, eins og áður segir, og sat í samráðshópi íslenskra stjórnvalda um fjármálastöðugleika. Söluandvirði bréfann, 192 milljónir króna, var einnig gert upptækt.
Benedikt krefst þess að fimm ummæli í bókinni verði dæmd dauð og ómerk, að því er fram kemur í frétt RÚV, en þau snúa að fullyrðingum Jóns Steinars um að dómsmorð hafi verið framið. „Dómsmorð er... dráp af ásettu ráði, þar sem réttarfarið verður að morðtólinu,“ skrifar Jón Steinar í bók sinni og vísar þar til gamallar skilgreiningar á hugtakinu, eins og það er orðað í frétt RÚV. Með þessu segir hann að dómarar hafi viljandi, gegn betri vitund, komist að niðurstöðu um að dæma Baldur sekan.