Veitingasala- og þjónusta notar samfélagsmiðla mest, eða 89 prósent, til að þróa ímynd fyrirtækisins eða markaðssetja vöru. Minnst notar byggingastarfsemi og mannvirkjagerð samfélagsmiðla í sama tilgangi eða 29 prósent.
Tveir þriðju hlutar allra fyrirtækja nota samfélagsmiðla til að þróa ímynd sína eða markaðssetja vörur.
Þetta kemur fram í nýrri rannsókn Hagstofunnar. Þar kemur fram að mikil aukning hafi verið á notkun samfélagsmiðla í fyrirtækjum.
Á þessu ári eru 82 prósent fyrirtækja hér á landi með eigin vef. Þriðjungur þeirra býður upp á að vörur eða þjónusta sé pöntuð af vefnum, mismikið eftir atvinnugreinum, flest í heild- og smásöluverslun og viðgerðum á vélknúnum ökutækjum.
Um þriðjungur notar samfélagsmiðla til ráðninga
Fjórðungur fyrirtækja tekur við pöntunum í gegnum vef eða smáforrit, flest í heild- og smásöluverslun og viðgerðum á vélknúnum ökutækjum.
Um þriðjungur notar samfélagsmiðla til að ráða fólk til starfa, en það er nokkur fjölgun síðan árið 2013 þegar þetta hlutfall var 19 prósent.
Rúmlega helmingur fyrirtækja notar samfélagsmiðla til að taka við ábendingum eða fyrirspurnum og svara þeim. Það er einnig fjölgun frá árinu 2013 þegar hlutfallið var 30 prósent.