Musk veitir brottrækum á Twitter „almenna sakaruppgjöf“

Eigandi Twitter hefur boðið fyrrverandi Bandaríkjaforseta og fleiri brottræka velkomna aftur á samfélagsmiðilinn. Ákvörðunina byggði hann, að hluta til, á skoðanakönnun á eigin prófíl.

Elon Musk, eigandi Twitter og ríkasti maður í heimi.
Elon Musk, eigandi Twitter og ríkasti maður í heimi.
Auglýsing

Elon Musk, eig­andi Twitter og rík­asti maður í heimi, ætlar að veita öllum þeim sem hafa verið bann­aðir á sam­fé­lags­miðl­in­um, fyrir nær hvaða sakir sem er, heim­ild til að snúa aftur á mið­il­inn.

Ákvörð­un­ina tók Musk eftir að nið­ur­stöðu óform­legrar skoð­ana­könn­unar sem hann gerði á Twitt­er-að­gangi sínum í vik­unni. Þegar 72 pró­sent svar­enda sögð­ust fylgj­andi því að hleypa brott­rækum Twitt­er-not­endum aftur á mið­il­inn lýsti Musk því yfir að bann­aðir not­endur fá að snúa aftur í næstu viku. Þó ekki þeir sem hafa brotið lög.

Auglýsing
Musk segir að um „al­menna sak­ar­upp­gjöf“ (e. general amnesty) sé að ræða. Meðal þeirra sem fá Twitt­er-að­gang­inn sinn aftur er Don­ald Trump, fyrr­ver­andi Banda­ríkja­for­seti. Musk er reyndar nú þegar búinn að veita honum aðgang.

Trump, sem und­ir­býr sig nú fyrir for­seta­fram­boð 2024, hyggst þó ekki snúa aft­ur, að minnsta kosti ekki í bráð. Twitt­er-að­gangi Trump var eytt eftir árás­ina á þing­húsið í Was­hington í jan­úar í fyrra.

Aðeins Trump sjálfur getur svarað af hverju hann vill ekki snúa aft­ur, en ástæð­urnar eru lík­lega fyrst og fremst fjár­hags­legar skuld­bind­ingar sem Trump þarf að standa við sem tengj­ast hans eigin sam­fé­lags­miðli, Truth Soci­al.

„Fólkið hefur tal­að“

Yfir 3,1 milljón Twitt­er-not­enda tók þátt í skoð­ana­könnun Musk og kusu 72,4 pró­sent með því að leyfa hinum brott­ræku að snúa aft­ur.

„Fólkið hefur tal­að. Sak­ar­upp­gjöfin hefst í næstu viku,“ tjáði Musk 118,9 milljón fylgj­endum sín­um.

Ekki liggur fyrir hvernig nákvæm­lega almenna sak­ar­upp­gjöfin mun fara fram. Musk hefur nú þegar gert aðganga rapp­ar­ans Ye (áður Kanye) og umdeilda áhrifa­valds­ins Andrew Tate virka á ný. Sam­sær­is­kenn­inga­smið­ur­inn Alex Jones verður hins vegar ekki boð­inn vel­kom­inn aftur á Twitt­er. Jones hefur meðal ann­ars verið gert að greiða 1,44 millj­arða Banda­ríkja­dali í skaða­bætur til aðstand­enda fórn­ar­lamba í skotárásinni í Sandy Hook-grunn­skól­anum árið 2012 fyrir að halda því statt og stöðugt fram að árásin hafi verið svið­sett. 20 börn og sex full­orðnir lét­ust í skotárásinni.

Musk greiddi 44 millj­­arða banda­­ríkja­dala fyrir Twitt­er. Kaupin gengu ekki snurð­u­­laust fyrri sig. Musk keypti fyrst hluta­bréf í Twitter í upp­­­hafi árs og í byrjun apríl var hlutur hans í fyr­ir­tæk­inu kom­inn yfir níu pró­­­sent og var hann þar með orð­inn meðal stærstu hlut­hafa í Twitter og bauðst að taka sæti í stjórn fyr­ir­tæk­is­ins. Hann afþakk­aði boðið og sagði ljóst að sam­­­fé­lags­mið­ill­inn gæti hvorki dafnað né þjónað til­­­­­gangi sínum í núver­andi formi.

Í kjöl­farið gerði hann yfir­­­­­tökutil­­­boð upp á 44 millj­­­arða Banda­­­ríkja­dala sem stjórn Twitter hafn­aði í fyrstu en ákvað svo að ganga að. Yfir­­­takan komst þó í nokkuð upp­­­­­nám í maí, áður en hlut­hafar höfðu tekið afstöðu til til­­­­­boðs­ins, þegar Musk sak­aði Twitter um að standa í vegi fyrir því að hann fengi upp­­­lýs­ingar um hversu hátt hlut­­­fall not­enda mið­ils­ins eru gervi­­­­­menni (e. bots).

Í tísti sem hann sendi frá sér greindi hann frá því að kaup hans á sam­­­­fé­lags­mið­l­inum hefðu verið sett á ís þar sem hann væri að bíða eftir gögnum sem gætu rök­­­­stutt full­yrð­ingar Twitter um að hlut­­­­fall gervi­­­­­­­menna á sam­­­­fé­lags­mið­l­inum væri innan við fimm pró­­­­sent.

Allt stefndi í að mög­u­­leg yfir­­­taka rík­­asta manns heim yrði gerð upp fyrir dóm­stólum en í lok októ­ber gekk Musk loks frá kaup­un­um, degi áður en loka­frestur til þess rann út. „Fugl­inn er frjáls!“ tísti Musk. Meðal fyrstu verka hans sem eig­andi Twitter var að segja upp tæp­­lega helm­ingi starfs­­fólks og leggja mann­rétt­inda­­deild fyr­ir­tæk­is­ins nið­­ur.

Aukin áreitni, hatur og upp­lýs­inga­óreiða

Nú hefur hann bætt í og ákveðið að hleypa fjölda not­enda aftur á mið­il­inn sem hafði verið úthýst. AP-frétta­stofan bendir á að skoð­ana­könn­unin sem Musk byggir ákvörðun sína á er langt frá því að vera vís­inda­leg og að auð­velt sé fyrir gervi­menni að hafa áhrif á nið­ur­stöð­una.

Sér­fræð­ingar á sviði net­ör­yggis benda á að ákvörðun Musk mun leiða til auk­inna áreitni, hat­urs­orð­ræðu upp­lýs­inga­óreiðu á Twitt­er.

Musk var ekki lengi að bregð­ast við frétt AP eins og honum einum er lagið og sagði Twitter aldrei geta keppt við AP-frétta­stof­una þegar kemur að upp­lýs­inga­óreiðu.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiErlent