Dómari mun skera úr hvort ríkasti maður heims verði að kaupa Twitter

Twitter mun fara fram á fyrir dómi að Elon Musk standi við kaup á fyrirtækinu. Kaupin hafa verið í uppnámi eftir að Musk vildi draga þau til baka vegna ágreinings um gervimenni.

Elon Musk, ríkasti maður heims, gerði yfirtökutilboð á Twitter í apríl. Í maí fékk hann bakþanka en nú mun Twitter láta reyna á það fyrir dómstólum að hann standi við gerða samninga.
Elon Musk, ríkasti maður heims, gerði yfirtökutilboð á Twitter í apríl. Í maí fékk hann bakþanka en nú mun Twitter láta reyna á það fyrir dómstólum að hann standi við gerða samninga.
Auglýsing

Hlut­hafar í Twitter hafa sam­þykkt að halda til streitu samn­ingi við Elon Musk, rík­asta mann í heimi, um kaup á fyr­ir­tæk­inu.

Ákvörð­unin var tekin á snörpum fjar­fundi hlut­hafa í vik­unni. Næsta skref fer fram í dóm­sal í októ­ber þar sem Twitter mun krefj­ast þess að Musk standi við upp­haf­legan samn­ing um kaup á fyr­ir­tæk­inu fyrir 44 millj­arða Banda­ríkja­dala, eða sem nemur 6.127 millj­örðum króna, sem er 12 millj­örðum minna en fyr­ir­tækið er metið á í dag.

Musk keypti fyrst hluta­bréf í Twitter í upp­hafi árs og í byrjun apríl var hlutur hans í fyr­ir­tæk­inu kom­inn yfir níu pró­sent og var hann þar með orð­inn meðal stærstu hlut­hafa í Twitter og bauðst að taka sæti í stjórn fyr­ir­tæk­is­ins. Hann afþakk­aði boðið og sagði ljóst að sam­fé­lags­mið­ill­inn gæti hvorki dafnað né þjónað til­gangi sínum í núver­andi formi.

„Sta­f­ræna bæj­­­ar­­torg­ið­“

Í kjöl­farið gerði hann yfir­tökutil­boð upp á 44 millj­arða Banda­ríkja­dala sem stjórn Twitter hafn­aði í fyrstu en ákvað svo að ganga að. Til­boðið vakti upp margar spurn­ing­ar. Hvað ætlar rík­asti maður í heimi að gera við Twitt­er? Sjálfur hefur hann talað fyrir minni rit­skoðun og óheft tján­ing­ar­frelsi á miðl­inum og sagst ætla að taka Twitter af mark­aði.

Auglýsing
Eftir að til­boðið var sam­þykkt sendi Musk frá sér yfir­lýs­ingu þar sem hann líkti Twitter við „sta­f­rænt bæj­­­ar­­torg­“. „Tján­ing­­ar­frelsi er und­ir­­staða virks lýð­ræðis og Twitter er staf­ræna bæj­­­ar­­torgið þar sem tek­ist er á um mik­il­væg mál­efni sem varða fram­­tíð mann­kyns,“ var haft eftir Musk í yfir­­lýs­ingu sem gefin var út eftir að yfir­­­tökutil­­boð hans var sam­­þykkt. Musk sagði mög­u­­leika Twitter gríð­­ar­stóra og að hann væri fullur til­hlökk­unar til að vinna með fyr­ir­tæk­inu og not­endum mið­ils­ins til að láta þá verða að veru­­leika.

Gervi­menni settu yfir­tök­una í upp­nám

Yfir­takan komst þó í nokkuð upp­nám í maí, áður en hlut­hafar höfðu tekið afstöðu til til­boðs­ins, þegar Musk sak­aði Twitter um að standa í vegi fyrir því að hann fengi upp­lýs­ingar um hversu hátt hlut­fall not­enda mið­ils­ins eru gervi­menni (e. bots). Í tísti sem hann sendi frá sér greindi hann frá því að kaup hans á sam­­fé­lags­mið­l­inum hefðu verið sett á ís þar sem hann væri að bíða eftir gögnum sem gætu rök­­stutt full­yrð­ingar Twitter um að hlut­­fall gervi­­­menna á sam­­fé­lags­mið­l­inum væri innan við fimm pró­­sent.

Þetta var í fyrsta sinn sem Musk sýndi fram á með form­legum hætti að vilja draga sig úr kaup­un­um. Það voru svo sem ekki óvænt tíð­indi. „Þetta er eitt­hvað sem hlut­hafar Twitter hafa verið að búa sig undir síð­­­ustu vik­­urn­­ar, augna­blikið þegar handa­hófs­­kenndar vanga­veltur Musk sem hann hefur birt í tístum eru slíp­­aðar niður í texta sem sendur er í for­m­­legu bréfi,“ sagði Sus­annah Streete, sér­fræð­ingur í fjár­fest­ingum og verð­bréfa­mörk­uðum hjá Hag­r­ea­ves Lans­down, í sam­tali við New York Times.

Bréfið sem hún vísar í var sent af lög­mönnum Musk til Twitter en í því segir að þessi skortur á upp­­lýs­inga­­gjöf feli í sér brot á sam­komu­lagi um kauptil­­boð Musks sem stjórn Twitter sam­­þykkti í apr­íl.

Til­boðið sam­þykkt í skugga upp­ljóstrana um örygg­is­bresti

Musk náði þeim áfanga í jan­úar í fyrra að verða rík­­­asti maður heims þegar hann tók topp­­sætið af Jeff Bezos, stofn­anda Amazon. Þá voru auð­ævi hans metin á 273 millj­­arða Banda­­ríkja­dala, sem jafn­­­gildir rúmum 35.577 millj­­örðum króna. Upp­hæðin hefur þó farið lækk­andi eftir yfir­lýs­ingar hans um yfir­töku á Twitter hófust, og eru auð­ævi hans nú metin á 219 millj­arða Banda­ríkja­dala, eða rúma 30.000 millj­arða króna.

Hlutabréf í Twitter hafa verið á hraðri niðurleið frá því í apríl þegar Musk greindi frá áformum sínum um að kaupa samfélagsmiðilinn. Mynd: EPA

Twitter segir Musk ekki eiga ann­arra kosta völ en að standa við gerðan samn­ing. Ákvörðun hlut­haf­anna var tekin skömmu eftir að Peiter Zat­ko, fyrr­ver­andi yfir­maður örygg­is­mála hjá Twitt­er, kom fyrir þing­nefnd öld­unga­deilda­þings Banda­ríkj­anna þar sem meintir örygg­is­gallar fyr­ir­tæk­is­ins voru til umræðu. Zatko sagði Twitter hafa afvega­leitt not­endur um hversu öruggur sam­fé­lags­mið­ill­inn er í raun og veru.

Zat­ko, sem var rek­inn frá Twitter í jan­ú­ar, sagði fyr­ir­tækið vera „ára­tugi á eft­ir“ hvað varðar örygg­is­staðla, gögn not­enda væri ekki varð­veitt nægi­lega og að of margir starfs­menn Twitter hefðu aðgang að þeim.

Hann sagði ákvörð­un­ina um að ger­ast upp­ljóstr­ari væri ekki auð­veld. „Ég er að stofna ferli mínum og mann­orði í hættu, en ef eitt­hvað gott kemur út úr þessu eftir fimm eða tíu ár verður það allt þess virð­i,“ sagði Zatko í vitna­leiðsl­un­um. Hann sagð­ist enn vera þeirrar skoð­unar að Twitter veiti góða þjón­ustu en skellti upp úr þegar hann var spurður hvort hann myndi kaupa mið­il­inn. „Það fer eftir verð­in­u.“

Næstu skref tekin í dóm­sal

Með því að sam­þykkja yfir­tökutil­boðið gefa hlut­hafar Twitter stjórn fyr­ir­tæk­is­ins grænt ljós á að fara með málið fyrir dóm þar sem þess verður kraf­ist að Musk gangi að kaup­un­um. Lög­fræð­ingum Musk verður heim­ilt að nýta vitn­is­burð Zatko við rétt­ar­höldin þar sem upp­lýs­ingar um gervi­menni gætu komið að gagni.

Rétt­ar­höldin fara fram í Delaware og hefj­ast í októ­ber. Það verður því í höndum dóm­ara að ákveða hvort Musk beri að taka yfir Twitter á upp­settu verði, 44 millj­örðum Banda­ríkja­dala.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira eftir höfundinnErla María Markúsdóttir
Meira úr sama flokkiErlent