Óvissustigi lýst yfir vegna aukinnar virkni í Öræfajökli

Ákvörðunin var tekin í samráði við Lögregluna á Suðurlandi.

Öræfajökull181117
Auglýsing

Almanna­varna­deild Rík­is­lög­reglu­stjóra hefur lýst yfir óvissu­stigi vegna vís­bend­inga um aukna virkni í Öræfajökli. Þetta kemur fram í til­kynn­ingu frá almanna­vörn­um.

Ákvörð­unin var tekin í sam­ráði við lög­reglu­stjór­ann á Suð­ur­landi sem verður með vakt á þjóð­veg­inum við Kvíá í nótt, að því er segir í til­kynn­ingu frá Rík­is­lög­reglu­stjóra.

Í til­kynn­ing­unni segir þó, að ekk­ert bendi ennþá til þess að eld­gos sé að hefj­ast.

Auglýsing

Til­kynn­ingin frá almanna­vörnum er eft­ir­far­andi:

„Vegna vís­bend­inga um aukna virkni í Öræfajökli hefur rík­is­lög­reglu­stjóri, í sam­ráði við lög­reglu­stjór­ann á Suð­ur­landi, lýst yfir óvissu­stigi almanna­varna.  Jarð­skjálfta­virkni hefur farið stig­vax­andi í Öræfajökli síð­asta árið og til­kynn­ingar um jarð­hita­lykt bár­ust í gær.  Nú undir kvöldið var stað­fest að breyt­ingar á yfir­borði Öræfa­jök­uls hafa orð­ið.

Engin merki eru um gos­óra eða yfir­vof­andi eld­gos.

Land­helg­is­gæslan mun fljúga með vís­inda­menn til að kanna aðstæður og taka sýni í fyrra­mál­ið.

Lög­reglan á Suð­ur­landi verður með vakt á þjóð­veg­inum við Kvíá í nótt en sú ráð­stöfun verður end­ur­skoðuð eftir flug vís­inda­manna um svæð­ið.

Veð­ur­stofan hefur aukið vöktun á svæð­inu og fylgist vel með í sam­ráði við jarð­vís­inda­menn Háskóla Íslands og Almanna­varna­deild Rík­is­lög­reglu­stjóra.

Frek­ari mæl­ingar verða gerðar í og við jökul­inn á næstu dögum sem gefa von­andi betri mynd af atburð­ar­rásinni sem er í gangi.

Óvissu­stig almanna­varna er lýst yfir þegar grunur vaknar um að eitt­hvað sé að ger­ast af nátt­úru- eða manna­völdum sem á síð­ari stigum gæti leitt til þess að heilsu og öryggi fólks, umhverfis eða byggðar sé ógnað

Að lýsa yfir óvissu­stigi er hluti af verk­ferlum í skipu­lagi almanna­varna til að tryggja form­leg sam­skipti og upp­lýs­inga­gjöf á milli við­bragðs­að­ila.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent