Orri Hauksson: Kerfisbundin og markviss skekkja fengið að viðgangast

Forstjóri Símans telur að mikil bjögun og skekkja einkenni stöðu á fjarskiptamarkaði, ekki síst vegna Gagnaveitu Reykjavíkur. Hann skrifaði forstjóra Póst- og fjarskiptastofnunar bréf vegna þessa á dögunum.

orri-hauks.jpg
Auglýsing

For­stjóri Sím­ans, Orri Hauks­son, segir í bréfi til Póst- og fjar­skipta­stofn­unar (Póst og fjar) að í langan tíma hafi feng­ist að við­gang­ast „skekkja“ á fjar­skipta­mark­aði vegna starf­semi Gagna­veit­unn­ar, dótt­ur­fé­lags Orku­veitu Reykja­vík­ur. Þetta bitni beint á fyr­ir­tækjum í sam­keppni, þar á meðal Sím­an­um.

„Í heild er því ljóst að kerf­is­bundin og mark­viss skekkja hefur fengið að við­gang­ast og magn­ast upp í óra­tíma á íslenskum fjar­skipta­mark­aði. Sím­inn óskar eftir því að íslensk fjar­skipta­yf­ir­völd leið­rétti þessa villu,“ segir hann í lok bréfs­ins, sem stílað er á Hrafn­kel V. Gísla­son, for­stjóra Póst og fjar. og Björn Geirs­son, yfir­lög­fræð­ing stofn­un­ar­inn­ar. Það var sent 10. nóv­em­ber síð­ast­lið­inn.

Allt önnur staða

Í bréf­inu, sem Kjarn­inn hefur undir hönd­um, segir Orri að Gagna­veitan búi við allt aðra stöðu á sam­keppn­is­mark­aði heldur en einka­reknir keppi­naut­ar. Fyr­ir­tækið geti í krafti opin­bers eign­ar­halds verið með allt önnur við­mið þegar kemur að aðgengi að fjár­magni, fjár­fest­ingum og afkomu. „Dótt­ur­fé­lag OR sem stundar sam­keppn­is­rekstur í fjar­skiptum þarf við fram­an­greindar aðstæður aug­ljós­lega að fara fram með sér­stak­lega vand­virkum hætti og leggja sig fram um „að við­un­andi arð­semi náist innan eðli­legs tíma­frests,“ eins og Póst og fjar. hefur gert kröfu um í fjár­fest­ingum starf­semi Gagna­veit­unn­ar,“ segir Orri í bréfi sín­um. 

Auglýsing

Eins og greint var frá að vef Kjarn­ans í októ­ber þá sendu Sam­tök iðn­­að­­ar­ins (SI) Degi B. Egg­erts­­syni borg­­ar­­stjóra bréf 11. októ­ber síð­­ast­lið­inn, þar sem þau lýsa yfir áhyggjum sínum vegna hátt­­semi Gagna­veit­unn­ar, og segja hana sam­keppn­is­hamland­i. 

Í bréf­inu er sér­­stak­­lega vikið að því að GR skuli bræð­i­­sjóða fjar­­skipta­lagnir innan húsa við ljós­­leið­­ar­a­­taug. Er þetta sagt fara gegn úrskurðum Póst- og fjar­­skipta­­stofn­unar og úrskurð­­ar­­nefndar fjarf­­skipta­­mála, en að GR hafi haldið áfram upp­­­teknum hætti eftir þá nið­­ur­­stöð­u. „Þessi frá­­­gangur GR leiðir til þess að eng­inn þjón­ust­u­veit­andi í inn­við­um, annar en GR, kemst að inn­­an­hússlögnum í við­kom­andi hús­um,“ segir í bréfi SI til borg­­ar­­stjóra, og er þetta sagt hamla sam­keppni og koma í veg fyrir að aðrir þjón­ust­u­veit­endur á þessu sviði, kom­ist inn á mark­að­inn.

Orri víkur einnig að þessu í bréfi sínu til Póst og fjar. og segir að Gagna­veitan neiti að veita „passífan“ aðgang að innviðum sín­um, þvert á það sem Evr­ópu­sam­bandið og Alþingi vilji ýta und­ir, til að auka sam­keppni, hag­kvæmni og fjöl­breytn­i. 

Segir SI ganga erinda

Í svar­bréfi sem for­­stjóri Gagna­veit­unn­ar, Erling Freyr Guð­­munds­­son, sendi til Sig­­urðar Hann­es­­son­­ar, fram­­kvæmda­­stjóra SI, borg­­ar­­stjóra, sam­­göngu- og sveit­­ar­­stjórn­­­ar­ráðu­­neyt­is­ins, Póst- og fjar­­skipta­­stofn­un­­ar, Voda­­fo­­ne, Sím­ans og Sam­­taka upp­­lýs­inga­­tækn­i­­fyr­ir­tækja, er látið að því liggja að SI séu með bréfi sínu að ganga erinda ein­stakra fyr­ir­tækja á mark­aðn­­­um. 

Hann segir auk þess Ljós­­leiðarann, á vegum Gagna­veit­unn­ar, hafa verið í mik­illi sam­vinnu við fjöl­marga aðila við að styrkja fjar­­skipta­­kerfi lands­ins og inn­­viði á sviði net­­þjón­­ustu. Þar á meðal séu raf­­verk­takar og aðrir sem sinni iðn­­aði af ýmsum toga. Hann neitar með öllu að fyr­ir­tækið sé að brjóta af sér, og segir að í bréfi SI sé ekki farið rétt með stað­reynd­ir. 

Beinir spjótum að fjár­mögnun

Í bréfi sínu beinir Orri spjót­unum að fjár­mögnun Gagna­veit­unnar og segir hana ekki vera í sam­ræmi við þá leið­sögn hafi komi fram þegar Póst og fjar. sam­þykkti hluta­fjár­aukn­ingu OR í Gagna­veit­unni, árið 2014. Þá hafi komið fram, að eftir hana ætti fjár­hags­legur aðskiln­aður að vera orð­inn eðli­leg­ur, miðað við sam­keppn­is­for­sendur á mark­aði. Þetta segir Orri ekki vera stöð­una núna, og tölur úr rekstri Gagna­veit­unnar sýni þetta. Vax­andi rekstr­ar- og fjár­fest­inga­kosn­aður sé einnig umhugs­un­ar­efni í þessu sam­hengi, segir Orri í bréf­inu.

Sam­kvæmt árs­reikn­ingi Gagna­veit­unnar fyrir árið 2016 var tap af rekstri félags­ins 172 millj­ónir króna. Eigið fé var 7,5 millj­arður króna og eig­in­fjár­hlut­fallið tæp­lega 50 pró­sent. Starfs­gildi hjá félag­inu voru rúm­lega 50, að því er fram kemur í árs­reikn­ingn­um.

Hagn­aður af rekstri Sím­ans á síð­asta ári var 2,7 millj­arðar króna. Eigið fé félags­ins nemur nú 35,9 millj­örðum króna og heild­ar­eignir ríf­lega 60 millj­örð­um. Félagið er skráð í kaup­höll Íslands og hefur mark­aðsvirði félags­ins auk­ist um 34,8 pró­sent á árinu.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent