Stjórnarandstöðunni boðin formennska í þremur nefndum

Katrín Jakobsdóttir formaður VG hitti Guðna Th. Jóhannesson í morgun og fékk hún formlegt umboð til að mynda ríkisstjórn.

Katrín Jakobsdóttir og Guðni Th. Jóhannesson.
Katrín Jakobsdóttir og Guðni Th. Jóhannesson.
Auglýsing

For­maður Vinstri grænna, Katrín Jak­obs­dótt­ir, hitti for­set­ann á Bessa­stöðum í morgun en þau áttu boð­aðan fund kl. 10:30. Á þeim fundi fékk Katrín form­legt umboð til að mynda rík­is­stjórn með Fram­sókn­ar­flokknum og Sjálf­stæð­is­flokkn­um. 

Katrín sagði eftir fund­inn að þau hefðu farið yfir málin og að hún hefði gefið for­set­anum skýrslu. Sam­eig­in­leg nið­ur­staða þess­ara þriggja flokka hafi verið sú að Katrín fái umboðið og verði for­sæt­is­ráð­herra í nýrri rík­is­stjórn. 

Hún sagði að stjórn­ar­and­stöð­unni hefði verið boðin for­mennska í þremur nefnd­um, stjórn­skip­un­ar- og eft­ir­lits­nefnd, vel­ferð­ar­nefnd og umhverf­is- og sam­göngu­nefnd. Svar hefði ekki enn borist við því. 

Auglýsing

Þing­flokks­fundur VG verður á fimmtu­dag­inn þar sem end­an­lega verður gengið frá mál­inu. Frek­ari upplýsingar um ráð­herra­skipan mun liggja fyrir þegar rík­is­stjórn verður kynnt. Þetta kom fram í máli Katrín­ar. 

Katrín trúir því að Fram­sókn og Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn séu til­búin að breyta vinnu­brögðum á Alþingi ef marka megi við­ræður þeirra. Fjár­laga­frum­varpið mun vera sett fram fyrir ára­mót en hugs­an­lega önnur mál, segir hún. Mjög lík­legt sé að þing­hald verði milli jóla og ára­móta.

Stjórn mynduð eins fljótt og auðið er

Guðni Th. sagði eftir fund­inn að hann hefði veitt Katrínu umboð til stjórn­ar­mynd­unar með Fram­sókn og Sjálf­stæð­is­flokki.

Hann sagði að eng­inn einn hefði ráðið för af þeim þremur flokks­for­mönnum og þess vegna hefði eng­inn fengið umboðið hingað til. Vænt­an­legur for­sæt­is­ráð­herra, Katrín Jak­obs­dótt­ir, hefði aftur á móti fengið umboðið núna til að mynda stjórn, enda vænt­an­legur for­sæt­is­ráð­herra í nýrri stjórn. 

Aðspurður hvenær stjórn yrði form­lega mynduð sagði Guðni Th. að það yrði eins fljótt og auðið er, hugs­an­leg á fimmtu­dag­inn. 

Stofn­anir flokk­anna verða að sam­þykkja mynd­un­ina

Kjarn­inn greindi frá því í gær að flokks­­stofn­­anir Sjálf­­stæð­is­­flokks, Fram­­sókn­­ar­­flokks og Vinstri grænna verði kall­aðar saman á morgun mið­viku­dag til að bera undir þær stjórn­ar­sátt­mála. Ef allar flokks­­stofn­­anir flokk­anna þriggja sam­­þykkja myndun rík­­is­­stjórn­­­ar­innar mun hún verða for­m­­lega mynduð annað hvort á fimmt­u­dag eða laug­­ar­dag. 

Föst­u­dag­­ur­inn 1. des­em­ber, full­veld­is­­dagur þjóð­­ar­inn­­ar, þykir ekki koma til greina vegna þess að for­­seti Íslands er ekki við­lát­inn til að halda fyrsta rík­­is­ráðs­fund nýrrar rík­­is­­stjórnar á þeim degi vegna emb­ætt­is­­skyldna.

Fyrsta mál sem hin nýja rík­­is­­stjórn mun leggja fram verða fjár­­lög og það er ekki hægt að gera fyrr en hún hefur verið for­m­­lega mynd­uð. Auk þess þarf fram­lagn­ing fjár­­laga að ganga í gegnum ákveð­inn feril áður en hægt er að leggja þau fram. 

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent