Guðmundur Ingi Guðbrandsson, framkvæmdastjóri Landverndar, verður næsti umhverfisráðherra þjóðarinnar. Hann mun sitja sem slíkur fyrir hönd Vinstri grænna þrátt fyrir að vera ekki þingmaður flokksins.
Svandís Svavarsdóttir verður næsti heilbrigðisráðherra þjóðarinnar og Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra. Steingrímur J. Sigfússon verður forseti Alþingis.
Í samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytið mun setjast Sigurður Ingi Jóhannsson, formaður Framsóknarflokksins. Lilja Alfreðsdóttir mun líklegast verða menntamálaráðherra og til viðbótar fær Framsóknarflokkurinn félagsmálaráðuneytið. Þar er talið líklegast að Þórunn Egilsdóttir eða Ásmundur Einar Daðason muni setjast.
Líklegt er talið að Kristján Þór Júlíusson verði færður um set, væntanlega í sjávarútvegs- og landbúnaðarráðuneytið, og Bjarni Benediktsson verður fjármála- og efnahagsmálaráðherra. Guðlaugur Þór Þórðarson verður þá áfram utanríkisráðherra, Sigríður Andersen áfram ráðherra innanríkismála og Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir áfram ráðherra ferðamála, iðnaðar og nýsköpunar. Jón Gunnarsson þykir líklegastur til að detta út úr ríkisstjórninni.