Gagnvirkri ljósainnsetningu Íslandsdeilar Amnesty International Lýstu upp myrkrið var ýtt úr vör í gær við Hallgrímskirkju en henni er ætlað að vekja athygli á árlegri herferð samtakanna Bréf til bjargar lífi. Hundruð þúsunda einstaklinga um heim allan taka höndum saman til að styðja þá sem sæta grófum mannréttindabrotum.
Markmið innsetningarinnar er að fá almenning til að grípa til aðgerða með því að ljá undirskrift sína vegna tíu áríðandi mála einstaklinga og hópa sem sæta grófum mannréttindabrotum og þrýsta á stjórnvöld í viðkomandi ríkjum að gera úrbætur. Með þessum hætti láta þátttakendur ljós sitt skína á þolendur mannréttindabrota, halda loganum lifandi í mannréttindabaráttunni og þrýsta á um bjartari framtíð fyrir þessa einstaklinga og heiminn allan.
Stjórnvöld geta ekki litið undan
Mikil ánægja var meðal gesta á ljósainnsetningunni, segir í tilkynningu frá samtökunum en hátt í 2000 undirskriftir söfnuðust á aðeins örfáum klukkutímum við Hallgrímskirkju í gær. Markmið herferðarinnar Bréf til bjargar lífi í ár er að safna í það minnsta 50.000 undirskriftum, fram til 16. desember, á bréf til viðkomandi stjórnvalda vegna málanna tíu.
Bryndís Bjarnadóttir, herferðastýra Íslandsdeildar Amnesty International, sagðist bjartsýn á að markmiðinu verði náð og benti á að máttarstólpi allrar mannréttindabaráttu fælist í samtakamættinum. „Í gegnum árin hefur Amnesty International lýst upp myrkrið í lífi þolenda mannréttindabrota um heim allan. Amnesty International samanstendur af einstaklingum, venjulegu fólki eins og þér og mér, sem samþykkir ekki að mannréttindabrot fái að líðast í heiminum. Fólki sem rís upp gegn órétti, kúgum og ofbeldi stjórnvalda.
Þegar stjórnvöldum sem brjóta á mannréttindum borgaranna berast milljónir bréfa frá fólki alls staðar að úr heiminum þar sem krafist er úrbóta, þar sem þess er krafist að þau láti af mannréttindabrotum og virði líf og mannhelgi borgara sinna, geta þau ekki litið undan. Aðgerðir okkar í hundraðavís draga brot stjórnvalda fram í dagsljósið og skapa öflugan þrýsting sem skilar raunverulegum breytingum í lífi þolenda mannréttindabrota. Það sjáum við gerast á hverju einasta ári. Sú staðreynd að við getum haft áhrif á líf fólks sem brotið er á tendrar ekki aðeins vonarljós í lífi þolendanna heldur kveikir baráttuanda í brjósti þeirra sem leggja málefninu lið.“
Samtökin skora á alla að lýsa upp myrkrið og grípa til aðgerða með undirskrift sinni annað hvort með því að mæta á ljósainnsetninguna við Hallgrímskirkju fram til 5. desember milli kl. 17 og 22 eða skrifa undir á vefsíðunni www.amnesty.is.