Ekkert afgangs eftir leikinn við Sádi-Arabíu

Greiðslan sem KSÍ fékk fyrir að spila vináttulandsleik við Sádi-Arabíu í nóvember fór öll í kostnað við leikinn sjálfann. „Það var ekk­ert eft­ir,“ segir formaður KSÍ. Heildarupphæðin verður þó ekki gefin upp.

Vanda Sigurgeirsdóttir, formaður KSÍ.
Vanda Sigurgeirsdóttir, formaður KSÍ.
Auglýsing

Greiðslan sem Knatt­spyrnu­sam­band Íslands (KSÍ) fékk fyrir að spila vin­áttu­lands­leik við Sádi-­Ar­abíu í nóv­em­ber fór öll í kostnað við leik­inn sjálf­an.

„Það var ekk­ert eft­ir,“ segir Vanda Sig­ur­geirs­dótt­ir, for­maður KSÍ, í við­tali við Kjarn­anna sem birt­ist á jóla­dag.

Auglýsing

Í við­tal­inu fer Vanda yfir fyrsta rúma árið í starfi for­manns KSÍ, gagn­rýn­ina sem virð­ist fylgja starf­inu og bar­áttu hennar fyrir jafn­rétt­is­málum innan og utan knatt­spyrnu­hreyf­ing­ar­inn­ar.

Á­kvörðun KSÍ um að spila leik­inn við Sádi-­Ar­abíu sætti mik­illi gagn­rýni. Yfir­­völd í Sádi-­­Ar­a­bíu hafa verið gagn­rýnd fyrir ítrekuð mann­rétt­inda­brot og sögð stunda „sport­þvott“ (e. sportswa­s­hing), það er að reynt að bæta ímynd sína með því að tengj­­­ast íþrótta­við­­­burðum eða íþrótta­liðum og beisla það mjúka vald sem íþrótt­­­irnar hafa í dæg­­­ur­­­menn­ingu nútím­ans. Sveigja almenn­ings­á­litið sér í vil.

Í frétt Stund­­ar­innar í lok nóv­­em­ber kemur fram að KSÍ hafi fengið tugi millj­­óna króna greidda fyrir vin­átt­u­lands­­leik­inn.

Vanda segir ekki rétt að tala um tugi millj­­óna en vill ekki upp­­lýsa um upp­­hæð­ina, meðal ann­­ars vegna trún­­aðar sem ríki milli KSÍ og við­kom­andi sér­­­sam­­banda og einnig umboðs­­manna sem sjá um að semja um greiðsl­­urn­­ar.

Vanda gefur þó upp að greiðslan hafi aðeins staðið undir kostn­aði við ferð lands­liðs­ins til Abu Dhabi þar sem leik­­ur­inn fór fram. „Það var ekk­ert eft­­ir. Jú, auð­vitað fengum við pen­ing­inn fyrir kostn­að­in­um, ég hef allan tím­ann sagt það en meira var það ekki.“

Í sama lands­liðs­­glugga spil­aði liðið gegn Suð­­ur­-Kóreu, sem einnig fékkst greiðsla fyr­­ir. Og þar var afgang­­ur. Hversu mik­ill vill KSÍ ekki gefa upp.

Snið­­ganga er ekki svarið

Vin­átt­u­­leikur við Sádi-­­Ar­a­bíu kom fyrst upp í umræð­una fljót­­lega eftir að Vanda tók við for­­mennsku í KSÍ. Í fyrstu var um stærri samn­ing að ræða en KSÍ ákvað að ganga ekki að hon­­um.

Í vor kom önnur beiðni um að spila vin­átt­u­­leik og við henni varð KSÍ. Vanda segir að ákvörð­unin hafi verið erfið en nið­­ur­­staðan var sú að taka boð­inu og nýta það til að eiga sam­­tal og nýta fót­­bolt­ann til sam­tals í stað þess að snið­­ganga.

„Ég skil fólkið sem er hund­­fúlt út í okk­­ur. Ég skil gagn­rýn­ina og þetta er mjög flók­ið. En, allan tím­ann fer ég alltaf til baka í að hugsa: Af hverju erum við að gera þetta? Ég er ekki að segja þetta sé full­kom­ið, ég veit um brot­in, en það hafa orðið breyt­ing­­ar. Það hafa orðið jákvæðar breyt­ingar í Sádi-­­Ar­a­bíu í átt að betri mann­rétt­ind­­um. Eru þau full­kom­in? Nei. Eiga þau eftir að vinna í mörg ár í við­­bót? Já, engin spuning.“

Vináttulandsleikurinn fór fram í Abu Dhabi í Sameinuðu arabísku furstadæmunum  6. nóvember og var liður Sáda í undirbúningi fyrir HM í Katar. Ísland tapaði leiknum, 1-0. Mynd: KSÍ

Vanda sleit lið­þófa svo hún komst ekki á leik­inn við Sádi-­­Ar­a­bíu eftir allt sam­­an. Hún óskaði þess í stað eftir fundi með knatt­­spyrn­u­­sam­­bandi Sádi-­­Ar­a­bíu í Katar í upp­­hafi heims­­meist­­ara­­móts­ins í nóv­­em­ber.

„Ég fund­aði með for­­mann­inum og fram­­kvæmda­­stjór­­anum og þá kemur í ljós að for­­mað­­ur­inn kemur til starfa 2019 og setti það mjög ofar­­lega hjá sér að hann vill stofna kvenna­lands­lið og koma deild­­ar­keppni af stað. Hann hafði þetta í gegn. Núna er komin deild og það er komið lands­lið.“

Þetta eru dæmi um breyt­ingar sem KSÍ vill styðja við. „Fólk þarf ekki að vera sam­­mála en staða kvenna og mann­rétt­indi fara hönd í hönd. Ég trúi því, og ekki bara ég, að ef þú bætir stöðu kvenna þá getur þú bætt mann­rétt­indi. Og hvað er það sem við getum gert? Snið­­ganga er ekki svar­ið,“ segir Vanda og vísar í finnskan kollega sinn.

„Líkt og hann sagði, fyrir lönd sem eru svona lít­il, ef við ætlum að hafa ein­hver áhrif þá verðum við að nota rödd­ina okk­­ar, að nota þrýst­ing, nota sam­­tal. Það er eina leiðin sem við höfum til að ná fram ein­hverjum breyt­ing­­um.“

Það eigi einnig við um ríki eins og Sádi-­­Ar­a­bíu þar sem mann­rétt­inda­brot eru stað­­reynd. „Ég skil gagn­rýn­ina. Algjör­­lega,“ ítrekar Vanda. „En, þetta var leiðin fyrir okkur inn.“

Við­talið við Vöndu má lesa í heild sinni hér.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent