Ljós logi á Hallgrímskirkju

Markmið herferðarinnar „Bréf til bjargar lífi“ í ár er að safna í það minnsta 50.000 undirskriftum, fram til 16. desember, á bréf til viðkomandi stjórnvalda vegna tíu áríðandi mála einstaklinga og hópa sem sæta grófum mannréttindabrotum.

Kertið úr lofti - Amnesty
Auglýsing

Gagn­virkri ljósainn­setn­ingu Íslands­deilar Amnesty International Lýstu upp myrkrið var ýtt úr vör í gær við Hall­gríms­kirkju en henni er ætlað að vekja athygli á árlegri her­ferð sam­tak­anna Bréf til bjargar lífi. Hund­ruð þús­unda ein­stak­linga um heim allan taka höndum saman til að styðja þá sem sæta grófum mann­rétt­inda­brot­um.

Mark­mið inn­setn­ing­ar­innar er að fá almenn­ing til að grípa til aðgerða með því að ljá und­ir­skrift sína vegna tíu áríð­andi mála ein­stak­linga og hópa sem sæta grófum mann­rétt­inda­brotum og þrýsta á stjórn­völd í við­kom­andi ríkjum að gera úrbæt­ur. Með þessum hætti láta þátt­tak­endur ljós sitt skína á þolendur mann­rétt­inda­brota, halda log­anum lif­andi í mann­rétt­inda­bar­átt­unni og þrýsta á um bjart­ari fram­tíð fyrir þessa ein­stak­linga og heim­inn all­an.

Auglýsing

Stjórn­völd geta ekki litið undan

Mikil ánægja var meðal gesta á ljósainn­setn­ing­unni, segir í til­kynn­ingu frá sam­tök­unum en hátt í 2000 und­ir­skriftir söfn­uð­ust á aðeins örfáum klukku­tímum við Hall­gríms­kirkju í gær. Mark­mið her­ferð­ar­innar Bréf til bjargar lífi í ár er að safna í það minnsta 50.000 und­ir­skrift­um, fram til 16. des­em­ber, á bréf til við­kom­andi stjórn­valda vegna mál­anna tíu. 

Bryndís BjarnadóttirBryn­dís Bjarna­dótt­ir, her­ferða­stýra Íslands­deildar Amnesty International, sagð­ist bjart­sýn á að mark­mið­inu verði náð og benti á að mátt­ar­stólpi allrar mann­rétt­inda­bar­áttu fælist í sam­taka­mætt­in­um. „Í gegnum árin hefur Amnesty International lýst upp myrkrið í lífi þolenda mann­rétt­inda­brota um heim all­an. Amnesty International sam­anstendur af ein­stak­ling­um, venju­legu fólki eins og þér og mér, sem sam­þykkir ekki að mann­rétt­inda­brot fái að líð­ast í heim­in­um. Fólki sem rís upp gegn órétti, kúgum og ofbeldi stjórn­valda. 

Þegar stjórn­völdum sem brjóta á mann­rétt­indum borg­ar­anna ber­ast millj­ónir bréfa frá fólki alls staðar að úr heim­inum þar sem kraf­ist er úrbóta, þar sem þess er kraf­ist að þau láti af mann­rétt­inda­brotum og virði líf og mann­helgi borg­ara sinna, geta þau ekki litið und­an. Aðgerðir okkar í hund­raða­vís draga brot stjórn­valda fram í dags­ljósið og skapa öfl­ugan þrýst­ing sem skilar raun­veru­legum breyt­ingum í lífi þolenda mann­rétt­inda­brota. Það sjáum við ger­ast á hverju ein­asta ári. Sú stað­reynd að við getum haft áhrif á líf fólks sem brotið er á tendrar ekki aðeins von­ar­ljós í lífi þolend­anna heldur kveikir bar­áttu­anda í brjósti þeirra sem leggja mál­efn­inu lið.“

Fólk var spennt yfir gagnvirku ljósainnsetningunni. Mynd: Amnesty

Sam­tökin skora á alla að lýsa upp myrkrið og grípa til aðgerða með und­ir­skrift sinni annað hvort með því að mæta á ljósainn­setn­ing­una við Hall­gríms­kirkju fram til 5. des­em­ber milli kl. 17 og 22 eða skrifa undir á vef­síð­unni www.am­nesty.­is.



Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent