Ríkissaksóknari telur álitamál hvort dómarar hafi verið hæfir

Í bréfi til endurupptökunefndar, sem fjallað var um í fréttum Stöðvar 2, kemur fram að dómarar í máli bankastjóra Landsbankans hafi verið hluthafar í bankanum.

Hæstiréttur
Auglýsing

Rík­is­sak­sókn­ari telur að álita­mál séu um hvort tveir dóm­arar hafi verið hæfir til að dæma í máli fyrr­ver­andi stjórn­enda Lands­bank­ans vegna hluta­bréfa­eignar þeirra í bank­an­um. 

Þetta kemur fram í við­brögðum hans við erindi end­ur­upp­töku­nefnd­ar, og var fjallað um þetta í fréttum Stöðvar 2 og á Vísi í kvöld.

Í mál­inu sem um ræðir voru Sig­ur­jón Þ. Árna­son og tveir aðrir fyrr­ver­andi stjórn­endur Lands­bank­ans dæmdir í fang­elsi. Hinn 8. októ­ber 2015 kvað Hæsti­réttur Íslands upp dóm í svoköll­uðu Imon-­máli og dæmdi þá seka.

Auglýsing

Með dómi Hæsta­réttar í öðru máli hinn 4. febr­úar 2016 voru Sig­ur­jón og þrír aðrir fyrr­ver­andi starfs­menn Lands­bank­ans svo sak­felldir fyrir mark­aðs­mis­notk­un. Á meðal þeirra dóm­ara sem dæmdu í báðum þessum málum í Hætsa­rétti voru Eiríkur Tóm­as­son og Viðar Már Matth­í­as­son. 

Um ári síðar var greint frá því að þeir Eiríkur og Viðar Már hefðu átt hluta­bréf í Lands­banka Íslands fyrir banka- og gjald­eyr­is­hrun­ið.

 DV greindi frá því 9. des­em­ber í fyrra að sam­an­lagt tap þeirra vegna hluta­fjár­eignar sinnar í Lands­bank­anum hefði numið 11 millj­ónum króna. Þetta eru upp­lýs­ingar sem lágu ekki fyrir þegar kveðnir voru upp dómar í þessum mál­um.

Í bréfi rík­is­sa­skókn­ara, sem er und­ir­ritað af Helga Magn­úsi Gunn­ars­syni vara­rík­is­sak­sókn­ara, segir meðal ann­ars, sam­kvæmt frétt Vísis: „Ef að end­ur­upp­töku­nefnd á að fjalla um van­hæfi umræddra tveggja dóm­ara til að taka sæti í dómnum verður það ekki gert nema með því að nefndin taki upp hjá sér að kom­ast að annarri nið­ur­stöðu um hæfi dóm­ar­anna, en þeir komust að sjálfir þegar þeir tóku sæti í dómn­um.“

Beiðni Sig­ur­jóns Þ. Árna­sonar um end­ur­upp­töku fram­an­greindra mála hefur ekki verið afgreidd af end­ur­upp­töku­nefnd enn­þá, segir í frétt­inni.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent