Samkeppniseftirlitið hefur fallist á að veita Arion banka, Íslandsbanka og Landsbankanum undanþágu frá samkeppnislögum til stofnunar og reksturs sameiginlegs seðlavers gegn tilteknum skilyrðum. Bankarnr þrír, sem eru samanlagt nær einráðir á íslenskum viðskiptabankamarkaði, hafa skuldbundið sig til að fara að þeim skilyrðum.
Starfsemi seðlavers felst í megindráttum í því að taka við seðlum og mynt frá útibúum, hraðbönkum og öðrum starfsstöðvum viðskiptabanka og sparisjóða, telja og skrá reiðufé, varðveita það, dreifa því til baka til útibúa, hraðbanka og annarra starfsstöðva og koma því, eftir atvikum, til geymslu í Seðlabankanum.
Í tilkynningu frá Samkeppniseftirlitinu segir að megin rökin fyrir stofnun og rekstri sameiginlegs seðlavers felist í því að samrekstur á þessu sviði geti leitt til töluverðs kostnaðarsparnaðar samanborið við að reka hvert seðlaver með aðskildum hætti hjá hverjum banka fyrir sig. Jafnframt gæti sameiginlegt seðlaver verið betur í stakk búið til að uppfylla öryggiskröfur.
„Skilyrðum sáttarinnar er m.a. ætlað að tryggja að sameiginlegt seðlaver verði rekið með sjálfstæðum hætti, tryggja jafnt aðgengi allra bærra aðila að hinu sameiginlega félagi, tryggja að verðlagning félagsins miðist eingöngu við þörfina fyrir að viðhalda starfseminni, vinna gegn því að starfsemi félagsins skerði samkeppni á milli eigenda félagsins (stóru viðskiptabankanna þriggja) á markaði fyrir almenna viðskiptabankaþjónustu og tryggja að sú hagræðing sem leiðir af samrekstrinum viðhaldist til framtíðar.
Framangreind undanþága byggir á 15. gr. samkeppnislaga, en samkvæmt henni getur Samkeppniseftirlitið veitt undanþágu frá banni laganna við samkeppnishamlandi samstarfi fyrirtækja, að tilteknum skilyrðum uppfylltum.“