Nær Ive að blása lífi í nýsköpunina hjá Apple?

Bretinn Jonathan Ive hefur tekið við stjórnun hönnunar og notendaupplifunar hjá Apple á nýjan leik. Þetta verðmætasta fyrirtæki heimsins hefur fengið á sig mikla gagnrýni að undanförnu fyrir að koma ekki fram með nægilega miklar nýjungar.

JonathanIve101217
Auglýsing

Breski iðn­hönn­uð­ur­inn Jon­athan Ive er kom­inn aftur inn í stjórn­enda­teymi Apple og mun stýra hönnun og not­enda­upp­lifun fyr­ir­tæk­is­ins. 

Í umfjöllun Wall Street Journal kemur fram að miklar vonir séu bundnar við að Ive tak­ist að efla nýsköp­un­ina hjá App­le, en fyr­ir­tækið hefur verið gagn­rýnt tölu­vert á und­an­förnum árum fyrir að hafa ekki verið nægi­lega fram­sækið þegar kemur að nýsköp­un. 

Ive hóf fyrst störf hjá Apple árið 1992 og hefur æ síðan komið að hönnun á ýmsum þekkt­ustu vörum Apple. Hann vann náið með Steve Jobs heitn­um, þegar hann var við stjórn­völ­inn hjá fyr­ir­tæk­inu, en fyrsta varan sem hann hann­aði að fullu sjálfur var iMac tölv­an.

Auglýsing

Ive hefur á und­an­förnum árum unnið að hönnun á höf­uð­stöðvum Apple en þær verða teknar að fullu í notkun á næsta ári. 

Verk­efnið er risa­vax­ið, en heild­ar­kostn­aður er met­inn rúm­lega fimm millj­arðar Banda­ríkja­dala, eða sem nemur 530 millj­örðum króna.



Ive þykir með áhrifa­mestu hönn­uðum sam­tím­ans og var hann meðal ann­ars aðlaður af Elísa­betu Bret­lands­drottn­ingu árið 2012, fyrir áhrif sín á sviði hönn­un­ar, og getur því kallað sig Sir. Jon­athan Ive. Hann er mennt­aður í iðn­hönn­un, en hefur sjálfur sagt að hans mesti áhrifa­valdur í hönnun sé faðir hans, Mich­ael Ive, en hann starf­aði sem silf­ur­smið­ur.

Óhætt er að segja fjár­hagur Apple sé traust­ur. Þetta verð­mætasta félag heims er nú metið á 870 millj­arða Banda­ríkja­dala, eða sem nemur um 90 þús­und millj­arða króna. 

Fyr­ir­tækið er með fulla vasa fjár, eftir ótrú­legt gengi á und­an­förnum ára­tug. Sam­tals á fyr­ir­tækið 270 millj­arða Banda­ríkja­dala, eða sem nemur um 30 þús­und millj­arða króna, í lausu fé frá rekstri. 





Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiErlent