238 fjölmiðlakonur, núverandi og fyrrverandi, hafa skrifað undir áskorun sem ætlað er að vekja athygli á áreitni, kynbundinni mismunun og kynferðisofbeldi sem hefur fengið að þrífast gagnvart konum í fjölmiðlum.
Í henni kemur fram að konur í fjölmiðlum hafi þagað allt of lengi, rétt eins og konur í öðrum stéttum. „Núverandi ástand er ekki boðlegt. Við krefjumst breytinga og skorum á íslenska fjölmiðla að taka meðfylgjandi frásagnir alvarlega, setja sér siðareglur varðandi áreitni og kynferðislegt ofbeldi, og fylgja þeim eftir. Gjarnan er talað um fjölmiðla sem fjórða valdið. Við komum hér saman undir formerkjum fimmta valdsins #fimmtavaldið. Sameinaðar höfum við áhrif.“
Með áskoruninni fylgja 72 sögur sem sýna fram á þær aðstæður, þá hegðun og það ofbeldi sem konum í fjölmiðlum hefur verið boðið upp á.
Áskorun þeirra í heildi sinni er hér að neðan:
„Konur í fjölmiðlum hafa þagað allt of lengi, rétt eins og konur í öðrum stéttum. Við þegjum ekki lengur. Við stígum fram og vekjum athygli á áreitni, kynbundinni mismunun og kynferðisofbeldi sem hefur fengið að þrífast gagnvart konum í fjölmiðlum.
Við lýsum yfir stuðningi við þær konur sem hafa þegar látið rödd sína hljóma og tekið þátt í þeirri byltingu sem nú á sér stað um allan heim þar sem konur taka höndum saman, konur í ákveðnum starfsstéttum standa saman og safna reynslusögum af kynferðislegri áreitni, óviðeigandi snertingum, óvelkomnum athugasemdum og þaðan af verra. Þannig er samt hversdagslegur veruleiki kvenna enn í dag, á 21. öldinni í samfélagi þjóðar sem jafnan er kennd við mesta kynjajafnrétti í heiminum. Við erum komin langt, en við þurfum að komast enn lengra.
Sú bylting sem nú stendur yfir hefur verið kennd við Weinstein-áhrifin eftir að konur fóru að greina frá kynferðislegri áreitni þessa áhrifamanns í Hollywood, #metoo. Hér á Íslandi voru konur í stjórnmálum fyrstar og sögðu sínar sögur með myllumerkinu #ískuggavaldsins. Konur í sviðslistum og kvikmyndagerð kenndu sig við myllumerkið #tjaldiðfellur.
Konur í fjölmiðlum vinna beinlínis við að koma upp um spillingu, segja frá ofbeldi og kúgun, ljóstra upp um leyndarmál sem skipta máli fyrir þjóðfélagið og borgara þess. Það er því ekki nema eðlilegt að við sameinaðar tökum þetta skref saman og sýnum samfélaginu öllu hvernig viðmóti og hegðum við mætum í okkar vinnu.
Núverandi ástand er ekki boðlegt. Við krefjumst breytinga og skorum á íslenska fjölmiðla að taka meðfylgjandi frásagnir alvarlega, setja sér siðareglur varðandi áreitni og kynferðislegt ofbeldi, og fylgja þeim eftir. Gjarnan er talað um fjölmiðla sem fjórða valdið. Við komum hér saman undir formerkjum fimmta valdsins #fimmtavaldið. Sameinaðar höfum við áhrif.
Þær sem taka þátt í þessari áskorun hafa sett nafn sitt hér að neðan, ásamt nafni fjölmiðils sem þær starfa eða hafa starfað hjá. Auk þess hafa margar einnig deilt reynslusögum sem fylgja nafnlausar með.“