238 fjölmiðlakonur rísa upp - Birta 72 sögur og segja ástandið ekki boðlegt

Fjölmiðlakonur hafa sent frá sér áskorun vegna þeirrar áreitni og þess kynferðislega ofbeldis sem þrifist hefur í stéttinni. Þær segja að núverandi ástand sé ekki lengur boðlegt. 238 núverandi og fyrrverandi fjölmiðlakonur skrifa undir og segja 72 sögur.

Dagblað
Auglýsing

238 fjöl­miðla­kon­ur, núver­andi og fyrr­ver­andi, hafa skrifað undir áskorun sem ætlað er að vekja athygli á áreitni, kyn­bund­inni mis­munun og kyn­ferð­is­of­beldi sem hefur fengið að þríf­ast gagn­vart konum í fjöl­miðl­um. 

Í henni kemur fram að konur í fjöl­miðlum hafi þagað allt of lengi, rétt eins og konur í öðrum stétt­um. „Núver­andi ástand er ekki boð­legt. Við krefj­umst breyt­inga og skorum á íslenska fjöl­miðla að taka með­fylgj­andi frá­sagnir alvar­lega, setja sér siða­reglur varð­andi áreitni og kyn­ferð­is­legt ofbeldi, og fylgja þeim eft­ir. Gjarnan er talað um fjöl­miðla sem fjórða vald­ið. Við komum hér saman undir for­merkjum fimmta valds­ins #fimmta­valdið. Sam­ein­aðar höfum við áhrif.“

Með áskor­un­inni fylgja 72 sögur sem sýna fram á þær aðstæð­ur, þá hegðun og það ofbeldi sem konum í fjöl­miðlum hefur verið boðið upp á. 

Auglýsing

Hægt er að lesa sög­urnar og sjá nöfn og vinnu­staði þeirra 238 kvenna sem skrifa undir áskor­un­ina, hér.

Áskorun þeirra í heildi sinni er hér að neð­an:

„Konur í fjöl­miðlum hafa þagað allt of lengi, rétt eins og konur í öðrum stétt­um. Við þegjum ekki leng­ur. Við stígum fram og vekjum athygli á áreitni, kyn­bund­inni mis­munun og kyn­ferð­is­of­beldi sem hefur fengið að þríf­ast gagn­vart konum í fjöl­miðl­um. 

Við lýsum yfir stuðn­ingi við þær konur sem hafa þegar látið rödd sína hljóma og tekið þátt í þeirri bylt­ingu sem nú á sér stað um allan heim þar sem konur taka höndum sam­an, konur í ákveðnum starfs­stéttum standa saman og safna reynslu­sögum af kyn­ferð­is­legri áreitni, óvið­eig­andi snert­ing­um, óvel­komnum athuga­semdum og þaðan af verra. Þannig er samt hvers­dags­legur veru­leiki kvenna enn í dag, á 21. öld­inni í sam­fé­lagi þjóðar sem jafnan er kennd við mesta kynja­jafn­rétti í heim­in­um. Við erum komin langt, en við þurfum að kom­ast enn lengra. 

Sú bylt­ing sem nú stendur yfir hefur verið kennd við Wein­stein-á­hrifin eftir að konur fóru að greina frá kyn­ferð­is­legri áreitni þessa áhrifa­manns í Hollywood, #metoo. Hér á Íslandi voru konur í stjórn­málum fyrstar og sögðu sínar sögur með myllu­merk­inu #ískugga­valds­ins. Konur í sviðs­listum og kvik­mynda­gerð kenndu sig við myllu­merkið #tjald­ið­fellur. 

Konur í fjöl­miðlum vinna bein­línis við að koma upp um spill­ingu, segja frá ofbeldi og kúg­un, ljóstra upp um leynd­ar­mál sem skipta máli fyrir þjóð­fé­lagið og borg­ara þess. Það er því ekki nema eðli­legt að við sam­ein­aðar tökum þetta skref saman og sýnum sam­fé­lag­inu öllu hvernig við­móti og hegðum við mætum í okkar vinnu. 

Núver­andi ástand er ekki boð­legt. Við krefj­umst breyt­inga og skorum á íslenska fjöl­miðla að taka með­fylgj­andi frá­sagnir alvar­lega, setja sér siða­reglur varð­andi áreitni og kyn­ferð­is­legt ofbeldi, og fylgja þeim eft­ir. Gjarnan er talað um fjöl­miðla sem fjórða vald­ið. Við komum hér saman undir for­merkjum fimmta valds­ins #fimmta­valdið. Sam­ein­aðar höfum við áhrif. 

Þær sem taka þátt í þess­ari áskorun hafa sett nafn sitt hér að neð­an, ásamt nafni fjöl­mið­ils sem þær starfa eða hafa starfað hjá. Auk þess hafa margar einnig deilt reynslu­sögum sem fylgja nafn­lausar með.“

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent