Konurnar sem saka Trump um áreitni eiga skilið að fá áheyrn

Sendiherra Bandaríkjanna hjá Sameinuðu þjóðunum segir að allar konur sem telja á sér brotið eigi skilið að fá áheyrn, og það eigi líka við um þær sem hafa sakað Trump Bandaríkjaforseta um áreitni.

Haley111217
Auglýsing

Sendi­herra Banda­ríkj­anna hjá Sam­ein­uðu þjóð­un­um, Nikki Haley, segir að allar konur sem saki karla um kyn­ferð­is­lega áreitni eða ósæmi­lega hegðun í sinn garð, eigi skilið að fá áheyrn og rétt­láta máls­með­ferð. 

Hún seg­ist stolt af #Metoo bylt­ing­unni og þeim sögum sem konur um allan heim hafa komið fram með á und­an­förnum vikum og mán­uð­um, þar sem ýmsum birt­ing­ar­myndum ofbeldis og ósæmi­legrar hegð­unar gagn­vart konum er lýst og þeim hafn­að. 

Þetta kom fram í við­tali við Haley við CBS sjón­varps­stöð­ina, en þegar talið barst að Banda­ríkja­for­seta, Don­ald Trump, og þeim fjöl­mörgu konum sem hafa ásakað hann um kyn­ferð­is­lega áreitni og ósæmi­lega hegð­un, í gegnum tíð­ina, sagði hún að það ætti að sjálf­sögðu líka við um þær eins og aðr­ar; þær ættu það skilið að á þær yrði hlustað og unnið úr málum þeirra með réttum hætt­i. 

Auglýsing



#Metoo bylt­ingin hefur nú þegar haft gíf­ur­leg áhrif um allan heim. Kon­ur, úr öllum stéttum og stigum sam­fé­laga, hafa stigið fram og sýnt sam­stöðu, þar sem ósæmi­legri hegðun - kyn­ferð­is­legri og karl­rembu­legri - er hafnað og úrbóta kraf­ist. 

Á Íslandi hafa konur sagt sögur sínar úr mörgum geirum sam­fé­lags­ins, og sýnt sam­stöðu með þeim sem hafa orðið fyrir órétti og ofbeldi af hálfu karla. Katrín Jak­obs­dóttir for­sæt­is­ráð­herra var ein þeirra sem las upp sögu á sam­stöðu­fundi í Borg­ar­leik­hús­inu í gær.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiErlent