Geirmundur dæmdur sekur um umboðssvik

Sparisjóðsstjóri SPKEF var í dag dæmdur í 18 mánaða skilorðsbundið fangelsi fyrir umboðssvik. Með dómnum snéri Hæstiréttur fyrri niðurstöðu í héraði.

Hæstiréttur
Auglýsing

Geir­­mund­ur Krist­ins­­son­, fyrr­ver­andi spari­­­sjóðs­stjóri Spari­­­sjóðs­ins í Kefla­vík (SPKEF), var í dag dæmd­ur í 18 mán­uða skil­orðs­bundið fang­elsi í Hæsta­rétti fyr­ir umboðs­svik. 

Þá var hon­um gert að greiða all­an áfrýj­un­­ar­­kostnað máls­ins og mál­svarn­­ar­­laun verj­anda síns, sam­tals 6,1 millj­­ón.

Í dómnum er meðal ann­ars vísað til ald­urs Geir­mundar og hann hafi ekki áður gerst sekur um refsi­verða hátt­semi. Með vísna til heilsu­fars er talið hæfi­legt að skil­orðs­binda alla refs­ing­una. „Ákærði er fæddur 1944 og hefur sam­kvæmt saka­vott­orði ekki áður gerst sekur um refsi­verða hátt­semi. Þá er nokkuð liðið síðan hann framdi brot sín. Að því virtu og að teknu til­liti heilsu­fars ákærða verður refs­ing hans ákveðin fang­elsi í 18 mán­uði sem bundin verður skil­orði eins og í dóms­orði grein­ir. Ákærði verður dæmdur til að greiða allan sak­ar­kostnað í hér­aði eins og hann var þar ákveð­inn. Þá verður ákærði dæmdur til að greiða sak­ar­kostnað fyrir Hæsta­rétti, þar með talin málsvarn­ar­laun skip­aðs verj­anda síns sem ákveðin verða að með­töldum virð­is­auka­skatti eins og í dóms­orði grein­ir,“ segir í dómnum.

Auglýsing

Geir­­mund­ur var ákærður fyr­ir umboðs­svik með því að hafa mis­­notað aðstöðu sína hjá spari­­­sjóðnum með lán­veit­ing­um til einka­hluta­­fé­laga. Fjár­­hæð­irn­ar í ákær­unni nema tæp­um átta hund­ruð millj­­ón­um króna. Í ákæru sagði að Geir­­mund­ur hefði stefnt fé spari­­­sjóðs­ins í veru­­lega hættu þegar hann fór út fyr­ir heim­ild­ir til lán­veit­inga með því að veita einka­hluta­­fé­lag­inu Duggi 100 millj­­óna króna yf­ir­­drátt­­ar­lán 16. júní 2008. Afstaða lána­­nefnd­ar lá ekki fyr­ir og áhættu- og greiðslu­­mat fór ekki fram. Þá var end­­ur­greiðslan ekki tryggð með nokkr­um hætti.

„Það sem hér hefur verið greint getur engu breytt um þau grund­vall­ar­at­riði að stofn­fjár­bréfin voru fram­seld frá B ehf. til I ehf. og færð í verð­bréfa­skrán­ingu sem eign síð­ar­nefnda félags­ins án þess að nokkuð hafi verið að gert til tryggja fyrr­nefnda félag­inu ráð yfir bréf­unum eða til­kall til verð­mætis þeirra. I ehf. til­heyrði hvorki B ehf. né Spari­sjóðnum A, heldur N sem fór að lögum einn með öll ráð yfir mál­efnum félags­ins. Þótt félagið hefði ekki getað fram­selt stofn­fjár­bréfin án sam­þykkis stjórnar Spari­sjóðs­ins A gat spari­sjóð­ur­inn ekki vegna fram­an­greindra aðstæðna einna skipt sér að öðru leyti af afdrifum bréf­anna eða mál­efnum félags­ins. Meðal ann­ars hefði hann þannig ekki getað fengið rönd við reist ef N hefði sem eig­andi félags­ins kosið að fram­selja alla hluti í því til ann­arra, hann hefði skuld­sett félagið við aðra, lán­ar­drott­inn I ehf. hefði leitað fulln­ustu kröfu með fjár­námi í þess­ari eign félags­ins eða lán­ar­drott­inn N hefði leitað fulln­ustu kröfu á hendur honum með fjár­námi í hlutum hans í félag­inu.

Geirmundur Kristinsson.

Að virtu öllu fram­an­greindu fól fram­sal stofn­fjár­bréf­anna frá B ehf. til I ehf. í sér veru­lega fjár­tjóns­hættu fyrir fyrr­nefnda félagið af völdum ákærða. Hann hefur því gerst sekur um þá hátt­semi sem um ræðir í síð­ari kafla ákæru og rétti­lega er þar færð til refsi­á­kvæð­is,“ segir í dómn­um.

Hæsti­réttur féllst á inn­tak ákæru um umboðs­svik í nið­ur­stöðu sinni, en í Hér­aðs­dómi Reykja­ness var Geir­mundur sýkn­aður af ákærunn­i. 

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent