Fanney Birna nýr aðstoðarritstjóri Kjarnans

Fanney Birna Jónsdóttir gengur til liðs við hluthafahóp Kjarnans. Tveir aðrir starfsmenn ráðnir til starfa.

Fanney Birna Jónsdóttir, nýr aðstoðarritstjóri Kjarnans, og Þórður Snær Júlíusson, ritstjóri miðilsins.
Fanney Birna Jónsdóttir, nýr aðstoðarritstjóri Kjarnans, og Þórður Snær Júlíusson, ritstjóri miðilsins.
Auglýsing

Fanney Birna Jóns­dóttir hefur verið ráðin aðstoð­ar­rit­stjóri Kjarn­ans. Hún mun hefja störf í dag. Fanney Birna mun sömu­leiðis koma inn í eig­enda­hóp Kjarn­ans.

Hún er fyrr­ver­andi aðstoð­ar­rit­stjóri Frétta­blaðs­ins og hefur und­an­farið ár stýrt póli­tíska þjóð­mála­um­ræðu­þætt­inum Silfr­inu á RÚV ásamt Agli Helga­syni. Fanney Birna mun áfram stýra Silfr­inu ásamt Agli.

Fanney Birna verður þriðji starfs­mað­ur­inn sem bæt­ist við hjá Kjarn­anum á skömmum tíma. Bára Huld Beck blaða­maður og Grettir Gauta­son verk­efna- og sölu­stjóri hófu einnig nýverið störf á miðl­in­um.  

Nýir starfsmenn Kjarnans ásamt ritstjóra. Mynd: Birgir Þór HarðarsonFanney Birna segir það mik­inn heiður fyrir sig að ganga til liðs við Kjarn­ann og sam­fé­lagið sem hefur mynd­ast í kringum mið­il­inn. „Ég er mjög spennt fyrir því að takast á við þetta verk­efni og þróa Kjarn­ann áfram með því öfl­uga fólki sem þar er fyr­ir. Íslenskt sam­fé­lag þarfn­ast nauð­syn­lega sterkra og óháðra fjöl­miðla. Á tímum þar sem blaða­mönnum fer fækk­andi og almanna­tenglum hratt fjölg­andi, ásamt því að valda­mestu menn sam­fé­lags­ins veigra sér ekki við því að vega að heiðri og þannig trausti fjöl­miðla, er beitt­ur, gagn­rýn­inn og aðhalds­samur frétta­flutn­ingur ómet­an­leg­ur. Ég fagna tæki­fær­inu til þess að fá að leggja mitt lóð á vog­ar­skál­arnar í þessum efnum hjá Kjarn­an­um, sem hefur sýnt að mið­ill­inn er til þess gerður að veita bæði stjórn­völdum og stór­fyr­ir­tækjum það aðhald sem er nauð­syn­legt í okkar lýð­ræð­is­sam­fé­lag­i.“

Auglýsing
Þórður Snær Júl­í­us­son, rit­stjóri og fram­kvæmda­stjóri Kjarn­ans, segir það mik­inn lið­styrk að fá Fann­eyju Birnu til liðs við mið­il­inn. „Kjarn­inn hefur vaxið mikið á und­an­förnum árum og mun fagna fimm ára afmæli á kom­andi ári. Rekstur mið­ils­ins er orð­inn sjálf­bær og stefnt er á mikla sókn á kom­andi árum. Þar hjálpar til að við höfum rekið fyr­ir­tækið heið­ar­lega og skyn­sam­lega frá fyrsta degi, alltaf gert upp við alla og skuldum engum neitt. Les­endur okkar hafa sýnt að þeir treysta Kjarn­anum til að vera leið­andi fjöl­mið­ill þegar kemur að umfjöllun um, og grein­ingu á, stjórn­mál­um, efna­hags­málum og við­skipt­um. Fanney Birna verður feiki­lega öflug við­bót við teymið okk­ar. Hún hefur hæfi­leika, þekk­ingu og reynslu sem mun bæta miklu við það sem við höfum upp á að bjóða.“

Kjarn­inn rekur frétta­vef, gefur út dag­legan morg­un­póst og heldur úti umfangs­mik­illi hlað­varps­þjón­ustu. Þá gefur Kjarn­inn út Vís­bend­ingu, viku­rit um við­skipti, efna­hags­mál og nýsköp­un, og heldur úti enskri frétta­þjón­ustu. Kjarn­inn er einnig í sam­starfi við önnur fjöl­miðla­fyr­ir­tæki um fram­leiðslu á efni. Þar ber helst að nefna sjón­varps­þátt Kjarn­ans á Hring­braut og útgáfu mán­að­ar­lega frí­blaðs­ins Mann­líf sem er gefið út í sam­starfi við Birt­ing.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent