Stormur HF 294, nýtt línu- og netaskip útgerðarinnar Stormur Seafood, sigldi til Reykjavíkurhafnar í gær, en þetta er fyrsta fiskiskipið á Íslandi sem er rafdrifið. Þetta er jafnframt fyrsti nýsmíðin í línuskipaflotanum í sextán ár, af því er segir í tilkynningu.
Skipið kemur hingað frá Gdansk í Póllandi og tók um tvö ár í smíði.
Stormur er 45 metra langur, um þúsund brúttólestir og tekur allt að 400 tonn af frystri afurð í lest. Að auki er skipið fyrsta rafknúna fiskiskipið á Íslandi og mun slíkur rafbúnaður lágmarka umhverfisáhrif og auka hagkvæmni við veiðar.
Eigandi Storms Seafood, Steindór Sigurgeirsson, segir í tilkynningu að mikilvægt sé að fleiri líti til kaupa á rafdrifnum skipum.„Eldsneytisnotkun á sambærilegum skipum er afar mikil og þarf geirinn í heild að huga betur að loftslagsmálum,“ segir Steindór. „Hagkvæmni við veiðar eykst einnig við komu skipsins en það er búið nýjustu gerð línubeitingarvélar sem tekur mun meira en sambærileg skip hér á landi. Það má því segja að koma skipsins marki tímamót í íslenskum sjávarútvegi.“