Sigríður mun ekki segja af sér í kjölfar dóms Hæstaréttar

Hæstiréttur hefur komist að þeirri niðurstöðu að Sigríður Andersen hafi brotið stjórnsýslulög í Landsréttarmálinu. Hún ætlar ekki að segja af sér embætti vegna þessa.

Sigríður Á. Andersen
Auglýsing

Sig­ríður Á. And­er­sen dóms­mála­ráð­herra mun ekki segja af sér í kjöl­far dóms Hæsta­réttar Íslands, sem birtur var fyrr í dag. Þetta kemur fram í svari Lauf­eyjar Rúnar Ket­ils­dótt­ur, aðstoð­ar­manns dóms­mála­ráð­herra, við fyr­ir­spurn Kjarn­ans um mál­ið.

Hæsti­réttur birti fyrr í dag nið­ur­stöðu sína í máli sem tveir umsækj­endur um stöðu Lands­rétt­ar­dóm­ara höfðu höfðað gegn íslenska rík­inu. Í dómnum kemur fram að Sigríður hafi brotið gegn ­stjórn­sýslu­lög­um þegar hún vék frá hæfn­is­mati dóm­nefndar um skipun 15 dóm­ara í Lands­rétt. 

Í dómi hans segir enn fremur að Sig­ríður hafi að lág­marki átt að gera sam­an­burð á hæfni ann­ars vegar fjög­urra umsækj­enda sem dóm­nefndin hafði metið á meðal 15 hæf­ustu en Sig­ríður ákvað að gera ekki til­lögu um að yrðu skip­að­ir, og þeirra fjög­urra sem hún ákvað frekar að skipa. Það hafi hún ekki gert og gögn máls­ins bentu ekki til þess að nein slík rann­sókn hefði farið fram af hálfu Sig­ríð­ar.

Auglýsing
Í dómnum seg­ir: „Sam­kvæmt því hefði máls­með­ferð hans verið and­stæð 10. gr. stjórn­sýslu­laga og af því leiddi að það sama ætti við um með­ferð Alþingis á til­lögu ráð­herra þar sem ekki hefði verið bætt úr þeim ann­mörkum sem máls­með­ferð ráð­herra var hald­in.“

Á vef dóms­mála­ráðu­neyt­is­ins er haft eftir Sig­ríði að nið­ur­staða Hæsta­réttar kveði á um að lagðar verði rík­ari skyldur á ráð­herra að rann­saka málið með sjálf­stæðum hætti. „Ég mun af þeim sökum bregð­ast við þess­ari nið­ur­stöðu Hæsta­réttar með því að setja reglur innan dóms­mála­ráðu­neyt­is­ins sem taka á því þegar ráð­herra hyggst leggja fyrir Alþingi aðrar til­lögur en þær sem hæf­is­nefnd leggur til við skipun dóm­ara, eins og honum er heim­ilt að gera sam­kvæmt lög­um.“

Kjarn­inn birti ítar­lega frétta­skýr­ingu um málið fyrr í dag. Hana má lesa hér.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent