Forlagið ehf. er stærsta bókaútgáfa á Íslandi með 45-50 prósent markaðshlutdeild í almennri bókaútgáfu. Það er um fjórfalt meiri hlutdeild en sá útgefandi sem kemur næst á eftir, en það er Bjartur-Veröld. Þá er Forlagið með mikla breidd í útgáfu samanborið við flesta aðra bókaútgefendur. Þetta kemur fram í niðurstöðum umfangsmikillar úttektar Samkeppniseftirlitsins á markaði fyrir bókaútgáfu á Íslandi. Þar segir að það sé niðurstaða ákvörðunar eftirltsins að Forlagið sé ennþá í markaðsráðandi stöðu á bókamarkaði.
Ástæða athugunar var sú að Forlagið óskaði eftir því að skilyrði sem voru sett árið 2008 vegna samruna JPV útgáfu og Vegamóta, þegar Forlagið varð til í núverandi mynd, yrðu felld úr gildi eða dregið úr þeim.
Þau skilyrði fela m.a. í sér að:
- Forlagið má aðeins semja um útgáfurétt á einum bókartitli hverju sinni við hvern rithöfund.
- Forlaginu er óheimilt að veita endurseljendum bóka afslátt frá heildsöluverði bóka sinna nema Forlagið geti með óyggjandi hætti sýnt fram á kostnaðarlegt hagræði af viðskiptum við viðkomandi endurseljanda sem sé í samræmi við afsláttinn.
- Forlaginu er óheimilt að mismuna endurseljendum bóka í hvers kyns kynningarstarfi, auglýsingaherferðum, eða með efni sem snýr að uppstillingu og auglýsingu bóka í verslunum endurseljenda nema slík mismunun byggist á almennum viðskiptalegum sjónarmiðum.
- Forlaginu er óheimilt að gera hvers kyns einkakaupasamninga við endurseljendur bóka.
- Forlaginu er óheimilt að hafa nokkur afskipti af söluverði endurseljenda þeirra bóka sem félagið gefur út eða birta með nokkru móti söluverð endurseljenda.
Í tilkynningu frá Samkeppniseftirlitinu segir: „Athugun Samkeppniseftirlitsins á bókamarkaðnum núna sýnir að staða Forlagsins hefur ekki breyst í meginatriðum á liðnum árum. Forlagið er enn stærsta bókaútgáfan á Íslandi með 45-50% hlutdeild í almennri bókaútgáfu og er með u.þ.b. fjórfalt meiri hlutdeild en sá útgefandi sem næst kemur að stærð sem er Bjartur-Veröld. Þá er Forlagið með mikla breidd í útgáfu samanborið við flesta aðra bókaútgefendur. Er það því niðurstaðan í ákvörðun eftirlitsins að Forlagið sé ennþá í markaðsráðandi stöðu á bókamarkaði.
Samkeppniseftirlitið telur því mikilvægt að skilyrðin, sem Forlagið óskar nú eftir að verði felld niður, og snúast aðallega um að Forlagið beiti ekki styrk sínum gagnvart keppinautum og skaði þannig samkeppni, gildi áfram. Skiptir líka máli að meirihluti keppinauta sem tók þátt í könnun eftirlitsins telja að skilyrðin hafi stuðlað að aukinni samkeppni og að ekki séu forsendur til að fella þau úr gildi að hluta til eða öllu leyti. Þá telur eftirlitið að Forlagið hafi ekki rökstutt hvernig skilyrðin setji félaginu í raun skorður og hvaða áhrif það hafi fyrir það og aðra ef þau yrðu felld niður.“