Komin fram úr árinu 2007 í launum

Laun hafa hækkað verulega á síðustu árum. Í Tíund, fréttabréfi Ríkisskattstjóra, er fjallað um þessa þróun og á það bent að upphæða launagreiðslna sé nú

kvennaframboð konur launamunur
Auglýsing

Launa­greiðslur voru á síð­asta ári hærri að raun­virði en árið 2007. Þetta er í fyrsta skipti sem það ger­ist, frá því tíma­móta­ári, þegar efna­hags­bólan fyrir hrun fjár­mála­kerf­is­ins náði hámarki.

Í grein Páls Kol­beins rekstr­ar­hag­fræð­ings hjá Rík­is­stjóra, í frétta­bréf­inu Tíund, kemur fram að fyr­ir­tæki og stofn­anir hafi greitt 1.231 millj­arða króna í laun í fyrra, en það er um 64,5 millj­örðum meira en árið 2007, sé raun­virði launa­greiðslna borið sam­an.

Í umfjöllun um skrif Páls í Tíund, í Frétta­blað­inu í dag, kemur fram að raun­virði launa hafi rýrnað mikið eftir hrun fjár­mála­kerf­is­ins en allt frá árinu 2010 hafa launa­greiðslur farið hækk­andi. Frá þeim tíma hefur end­ur­reisn íslensks efna­hags­lífs­ins verið afar kröftug og hag­vaxt­ar­skeiðið ekki síst borið uppi af miklum vexti ferða­þjón­ust­unn­ar. Að raun­virði hafa launa­greiðslur hækkað um 36 pró­sent á síð­ustu sex árum.

Auglýsing

Á þessu ári er gert ráð fyrir að ferða­þjón­ustan skili þjóð­ar­bú­inu um 535 millj­örðum króna, eða um 40 pró­sent af öllum gjald­eyr­is­tekjum þjóð­ar­búss­ins. Sá mikli vöxtur sem hefur verið innan hennar á und­an­förnum árum hefur ýtt undir auknar launa­greiðsl­ur, eins og gefur að skilja.

Ríki og sveit­ar­fé­lög greiddu hæstu fjár­hæð­ina í laun eða ríf­lega 301 millj­arð ­sem er um 24,5 pró­sent launa í land­inu.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent