Guðni Th. Jóhannesson, forseti Íslands, sagði í nýársávarpi sínu í dag að nýliðins árs yrði kannski einkum minnst fyrir þau tímamót að konur hafi fylkt liði gegn kynferðislegri áreitni og ofbeldi, sögðu hingað og ekki lengra og karlar tóku undir. „Við eigum að standa saman um samfélag sem hafnar ráðríki hinna freku, áfergju þeirra sem þykjast geta komist upp með hvað sem er. Í þessum efnum sem öðrum má þó varast alhæfingar, hviksögur og haldlausar ásakanir; þær spilla góðum málstað.“
Guðni sagði að nú væri uppi mikið hagvaxtarskeið hérlendis. Góðæri sem sumir líki við árið 2007. „Laust fyrir jól mátti lesa í einum fjölmiðli að þessi gósentíð sæist meðal annars í eldhúsum landsmanna „sem virðast verða flottari og dýrari með hverjum deginum“. Annars staðar var frá því greint að endurvinnslustöðvar hefðu vart undan að taka við varningi fólks, oftar en ekki í góðu lagi en utan tískustrauma og þyrfti því að farga. Er þetta alveg sjálfsagt?“
Forsetinn sagði að á sama tíma og sumir lifi við þetta góðæri berjist margir við að ná endum saman og búi jafnvel við sára fátækt. Efnisleg verðmæti tryggi þó ekki endilega hamingju og lífsgæði og að það væri áhyggjuefni hversu illa Íslandi hefði gengið að safna í sjóð þegar vel áraði. „Er þetta eitthvað í þjóðarsálinni? Í rapplaginu „Græða peninginn“ syngur tíu ári snáði, Úlfur Emilio Machado Tinnuson, um þá list sem geri honum kleift að kaupa ís og bland í poka. „Sóaði öllum peningunum en ég bara græði á morgun,“ segir svo áfram í laginu. Bragð er að þá barnið finnur! Hér má horfa öfundaraugum til Norðmanna sem báru gæfu til að setja olíuauð sinn í þjóðarsjóð. Við búum líka yfir sameiginlegum auðlindum. Þau lofa því góðu, áform stjórnvalda um þjóðarsjóð Íslands sem tryggi að arður auðlindanna renni til nýsköpunar og nauðsynlegra endurbóta í heilbrigðiskerfinu, auk annarra þjóðþrifamála.“
Guðni sagði að Íslendingar búi í samfélagi og eigi að hugsa vel hverjir um aðra. „Ég vona að við getum verið sammála um þann grundvöll þjóðskipulagsins að jafnrétti ríki á öllum sviðum, að allir fái grunnmenntun og geti reitt sig á öflugt velferðar- og heilbrigðiskerfi, óháð efnahag eða búsetu, að allir megi njóta eigin atorku en greiði sanngjarna skatta og skyldur til sameiginlegra þarfa, og allir njóti arðs af sameiginlegum auðlindum okkar.“
Hægt er að lesa ávarp forsetans í heild sinni hér.