Vilhjálmur Hans Vilhjálmsson, lögmaður, lagði fram kröfu í Landsrétti á föstudag um að Arnfríður Einarsdóttir, dómari við dómstólinn, víki sæti úr dómsmáli sem henni hafði verið úhlutað vegna vanhæfis. Arnfríður var einn fjögurra dómara sem dómsmálaráðherra lagði til að yrði skipuð í stað þeirra fjögurra sem sérstök hæfnisnefnd mat hæfasta.
Frá þessu er greint í frétt RÚV í kvöld.
Björn L. Bergsson, skrifstofustjóri Landsréttar, staðfestir í samtali við fréttastofu RÚV að krafan hafi verið lögð fram fyrir helgi og að tekin verði afstaða til málsmeðferðarinnar á morgun en fyrstu málin verða flutt fyrir Landsrétti á þriðjudag.
„Dómarar við dómstólinn úrskurða sjálfir um eigið hæfi og það verða því þeir þrír dómarar sem eiga að dæma í umræddu máli sem fá það verkefni - Arnfríður, Jóhannes Sigurðsson og Þorgeir Ingi Njálsson. Jóhannes og Þorgeir voru báðir í þeim hópi sem hæfisnefndin mat hæfasta.
Vilhjálmur Hans staðfesti í samtali við fréttastofu að hann hefði lagt kröfuna fram en vildi að öðru leyti ekki tjá sig um málið.
Samkvæmt upplýsingum fréttastofu er krafan meðal annars rökstudd með vísan til nýlegs dóms Evrópudómstólsins þar sem skipun dómara í starfsmannarétt dómstólsins var talin ólögmæt og hún gæti leitt til þess að ómdara hans yrði ómerktir. Þá er einnig vísað til nýlegs dóms EFTA-dómstólsins þar sem talið var að annmarki væri á skipun norsk dómara.
Þá er í kröfunni einnig vísað til dóma Hæstaréttar í málum Ástráðs Haraldssonar og Jóhannesar Rúnars Jóhannessonar. Hæstiréttur dæmdi íslenska ríkið til að greiða hvorum um sig 700 þúsund krónur í miskabætur vegna ólöglegrar málsmeðferðar við skipan dómara í Landsrétt,“ segir í frétt RÚV.