Fólki fjölgar meira á Norðurlöndunum en annars staðar í Evrópu

Samkvæmt skýrslu frá Norrænu ráðherranefndinni er helsta ástæða fólksfjölgunarinnar aðflutningur fólks frá löndum utan Norðurlanda.

Fólk samankomið. By Rakel Tómasdóttir
Auglýsing

Fólki fjölgar meira á Norð­ur­lönd­unum en ann­ars staðar í Evr­ópu. Helsta ástæða fólks­fjölg­un­ar­innar er aðflutn­ingur fólks frá löndum utan Norð­ur­landa. Frá árinu 2000 hafa 4,3 millj­ónir fólks flust til Norð­ur­land­anna á sama tíma og 2,5 millj­ónir hafa fluttst á brott. Aðfluttir umfram brott­flutta eru því 1,8 millj­ónir manna.

Þetta er meðal nið­ur­staðna sem greint er frá í State of the Nor­dic Reg­ion 2018, nýrri skýrslu frá Nor­rænu ráð­herra­nefnd­inni. Í skýrsl­unni eru bornar saman upp­lýs­ingar frá 74 svæðum Norð­ur­land­anna í máli og aðgengi­legum kort­u­m. Frá þessu er greint í til­kynn­ingu frá Nor­dreg­io. 

Fólk flytur til Norð­ur­land­anna af ýmsum ástæðum svo sem vegna vinnu og náms, segir í til­kynn­ing­unni. Einnig er greint frá því að af fólki á flótta hafi hlut­falls­lega flestir leitað til Sví­þjóðar þar sem hæl­is­leit­endur voru 16,7 á hverja 1000 íbúa árið 2015, þegar straumur flótta­fólks var sem mest­ur. Sam­svar­andi tala fyrir Noreg er 6,0 og Finn­land fylgir á eftir með 5,9. Á síð­ustu 20 árum hafi þeim sem fæddir eru utan Norð­ur­land­anna fjölgað úr 6,5 pró­sent árið 1995 í 14,3 pró­sent tutt­ugu árum síð­ar.

Auglýsing

Að Græn­landi und­an­skildu hefur fólki fjölgað á öllum Norð­ur­lönd­unum und­an­farin tíu ár og hefur heildar mann­fjöld­inn farið úr 25 millj­ónum í 27 millj­ón­ir. Hlut­falls­lega var fjölg­unin mest í Nor­egi eða 12,3 pró­sent en næst­mest á Íslandi þar sem hún var 10 pró­sent. Í fjöl­menn­asta nor­ræna rík­inu, Sví­þjóð hefur íbúum fjölgað um 9,7 pró­sent. Frá 2007 til 2017 var fjölgun á svæð­inu öllu 8,1 pró­sent og má búast við að árið 2030 verði íbú­arnir orðnir 30 millj­ón­ir.

Norð­ur­landa­búar að eld­ast

Þró­un­ina má jafn­framt rekja til fjölg­unar í árgöngum eldra fólks sem eru hlut­falls­lega fjöl­menn­ari á Norð­ur­lönd­unum en að með­al­tali í Evr­ópu. Fjölg­unin er mest á þétt­býl­is­stöð­um, bæði vegna flutn­ings ungs fólks til borg­anna og vegna aðflutn­ings fólks frá öðrum lönd­um. 

Almennt eru Norð­ur­landa­búar að eld­ast. Sam­kvæmt skýrsl­unni er ástæðan fyrst og fremst afar stórir árgangar fólks á aldr­inum 65 til 79 ára þar sem hlut­falls­lega fleiri lifa lengur en áður. Fram­reikn­ingur sýnir að fólki mun halda áfram að fjölga fram til 2030 en þó örlítið hægar en verið hef­ur.

Á stórum svæðum í Finn­landi má búast við að helm­ingur full­orð­inna íbúa verði eldri en 65 ára árið 2030. Aðeins á örfáum svæðum eins og í Stokk­hólmi, Kaup­manna­höfn, Osló og Reykja­vík hefur skipt­ingin milli fólks á vinnu­færum aldri og fólks á eft­ir­launa­aldri annað hvort lag­ast eða eða skekkst minna en ann­ars stað­ar.

Borgir stækka

Á öllum Norð­ur­lönd­unum stækka borg­irn­ar. Sé litið til þró­unar fram til 2030 er búist við því að fólks­fjölgun á svæð­unum í kringum Kaup­manna­höfn/Mal­mö, Stokk­hólm, Ósló og Helsinki verði meira en 10 pró­sent. Nú er staðan sú að um 20 pró­sent alls fólks á Norð­ur­lönd­unum býr í höf­uð­borg­unum og nágrenni þeirra.

Borg­irnar stækka ekki síst vegna þess að unga fólkið flytur þangað til náms eða starfa, auk þess sem stór hluti þeirra sem flytja til Norð­ur­land­anna sest að í borg­um, segir í skýrsl­unni. Þetta hefur í för með sér að þrátt fyrir að íbú­arnir eld­ist almennt séð, þá er þró­unin mun hæg­ari í stærstu borgum Norð­ur­land­anna.

Skýrslan er unnin af Nor­dreg­io, fræða­stofnun ráð­herra­nefnd­ar­innar í skipu­lags- og byggða­mál­um, sem hefur gefið út sam­bæri­legar skýrslur í mörg ár. Auk kafla um lýð­fræði, efna­hags­mál og vinnu­markað eru kaflar um um staf­ræna tækni­þró­un, líf­hag­kerfi, heilsu­far og menn­ingu.

Hægt er að fræð­ast frekar um skýrsl­una á nor­den.org

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiErlent