Samráðshópur um endurskoðun búvörusamninga hefur verið skipaður af sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra en formennirnir eru tveir og koma úr gagnstæðri átt. Þau Brynhildur Pétursdóttir framkvæmdastjóri Neytendasamtakanna og Haraldur Benediktsson, þingmaður Sjálfstæðisflokksins og fyrrverandi formaður Bændasamtakanna, gegna bæði hlutverki formanns hópsins.
Auk þess eru í hópnum Þórlindur Kjartansson, skipaður af landbúnaðarráðherra, Hafdís Hanna Ægisdóttir, skipuð af umhverfis- og auðlindaráðherra, Jóhanna Hreinsdóttir skipuð af Samtökum afurða í mjólkuriðnaði, Halldór Árnason skipaður af Samtökum atvinnulífsins, Sindri Sigurgeirsson formaður Bændasamtakanna og Elín Heiða Valsdóttir einnig skipuð af Bændasamtökunum.
Í tilkynningu frá sjávarútvegs- og landbúnaðarráðuneytinu kemur fram að við afgreiðslubúvörusamninganna árið 2016 hafi verið lagt upp með að skipaður yrði sjö manna samráðshópur en í tíð tveggja síðustu ríkisstjórna hafi fulltrúum verið fjölgað í annars vegar tólf og hins vegar þrettán. Ráðherra hafi hins vegar ákveðið að endurskipa í hópinn „enda rétt að vinna hópsins taki m.a. mið af þeim áherslum sem fram koma í stefnuyfirlýsingu ríkisstjórnar Katrínar Jakobsdóttur.“
Starfshópnum verður sent erindisbréf sem tekur mið af þeim umræðum sem fram fóru á Alþingi þegar gildandi búvörulög voru samþykkt og þeim áherslum sem fram koma í stefnuyfirlýsingu nýrrar ríkisstjórnar. Lögð verður áhersla á að hópurinn ljúki störfum sem fyrst og eigi síðar en í lok árs 2018.
Í tilkynningunni er haft eftir Kristjáni Þór Júlíussyni sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra að hann hafi laft á það ríka áherslu við skipan hópsins að veita sjónarmiðum neytenda aukna vigt við endurskoðun búvörusamninganna, m.a. með því að skipa fulltrúa Neytendasamtakanna sem annan formanna hópsins. „Þessi fjölbreytti hópur hefur fulla burði til að ná víðtæku samkomulagi um tillögur sem geta orðið grundvöllur að öflugum atvinnurekstri í landbúnaði og ekki síður skapað meiri sátt um uppbyggingu íslensks landbúnaðar.“