Tveir formenn í hópi sem endurskoðar búvörusamninga

Þau Brynhildur Pétursdóttir framkvæmdastjóri Neytendasamtakanna og Haraldur Benediktsson, þingmaður Sjálfstæðisflokksins og fyrrverandi formaður Bændasamtakanna, gegna bæði hlutverki formanns hópsins.

Brynhildur Pétursdóttir og Haraldur Benediktsson formenn samráðshóps um endurskoðun búvörusamninga.
Brynhildur Pétursdóttir og Haraldur Benediktsson formenn samráðshóps um endurskoðun búvörusamninga.
Auglýsing

Sam­ráðs­hópur um end­ur­skoðun búvöru­samn­inga hefur verið skip­aður af sjáv­ar­út­vegs- og land­bún­að­ar­ráð­herra en for­menn­irnir eru tveir og koma úr gagn­stæðri átt. Þau Bryn­hildur Pét­urs­dóttir fram­kvæmda­stjóri Neyt­enda­sam­tak­anna og Har­aldur Bene­dikts­son, þing­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins og fyrr­ver­andi for­maður Bænda­sam­tak­anna, gegna bæði hlut­verki for­manns hóps­ins.

Auk þess eru í hópnum Þór­lindur Kjart­ans­son, skip­aður af land­bún­að­ar­ráð­herra, Haf­dís Hanna Ægis­dótt­ir, skipuð af umhverf­is- og auð­linda­ráð­herra, Jóhanna Hreins­dóttir skipuð af Sam­tökum afurða í mjólkur­iðn­aði, Hall­dór Árna­son skip­aður af Sam­tökum atvinnu­lífs­ins, Sindri Sig­ur­geirs­son for­maður Bænda­sam­tak­anna og Elín Heiða Vals­dóttir einnig skipuð af Bænda­sam­tök­un­um.

Í til­kynn­ingu frá sjáv­ar­út­vegs- og land­bún­að­ar­ráðu­neyt­inu kemur fram að við afgreiðslu­bú­vöru­samn­ing­anna árið 2016 hafi verið lagt upp með að skip­aður yrði sjö manna sam­ráðs­hópur en í tíð tveggja síð­ustu rík­is­stjórna hafi full­trúum verið fjölgað í ann­ars vegar tólf og hins vegar þrett­án. Ráð­herra hafi hins vegar ákveðið að end­ur­skipa í hóp­inn „enda rétt að vinna hóps­ins taki m.a. mið af þeim áherslum sem fram koma í stefnu­yf­ir­lýs­ingu rík­is­stjórnar Katrínar Jak­obs­dótt­ur.“

Auglýsing

Starfs­hópnum verður sent erind­is­bréf sem tekur mið af þeim umræðum sem fram fóru á Alþingi þegar gild­andi búvöru­lög voru sam­þykkt og þeim áherslum sem fram koma í stefnu­yf­ir­lýs­ingu nýrrar rík­is­stjórn­ar. Lögð verður áhersla á að hóp­ur­inn ljúki störfum sem fyrst og eigi síðar en í lok árs 2018.

Í til­kynn­ing­unni er haft eftir Krist­jáni Þór Júl­í­us­syni sjáv­ar­út­vegs- og land­bún­að­ar­ráð­herra að hann hafi laft á það ríka áherslu við skipan hóps­ins að veita sjón­ar­miðum neyt­enda aukna vigt við end­ur­skoðun búvöru­samn­ing­anna, m.a. með því að skipa full­trúa Neyt­enda­sam­tak­anna sem annan for­manna hóps­ins. „Þessi fjöl­breytti hópur hefur fulla burði til að ná víð­tæku sam­komu­lagi um til­lögur sem geta orðið grund­völlur að öfl­ugum atvinnu­rekstri í land­bún­aði og ekki síður skapað meiri sátt um upp­bygg­ingu íslensks land­bún­að­ar.“

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent