Samkeppniseftirlitið telur ekki ástæðu til að aðhafast vegna kaupa Nova hf. á Símafélaginu ehf. Þetta kemur fram í ákvörðun eftirlitsins.
Í niðurstöðu Samkeppniseftirlitsins kemur fram að starfsemi Nova feli aðallega í sér að veita farsímaþjónustu en meginstarfsemi Símafélagsins sé rekstur fastanets í tengslum við talsíma- og internetþjónustu. Því séu áherslur í starfsemi samrunaaðilanna með nokkuð ólíkum hætti á fjarskiptamarkaði.
Markmið með samrunanum sé að sameina tvö fjarskiptafélög í eitt sem verði betur í stakk búið en áður til þess að láta að sér kveða í þjónustu við fyrirtæki, einstaklinga og heimili. Þá fái hið sameinaða félag aukin tækifæri til að ná árangri við að veita alhliða fjarskiptaþjónustu, þ.e. farsíma-, internet- og eftir atvikum talsímaþjónustu.
„Samkeppniseftirlitið getur ekki séð út frá gögnum málsins að viðkomandi samruni leiði til þess að markaðsráðandi staða verði til eða styrkist eða að samruninn leiði til þess að samkeppni raskist að öðru leyti með umtalsverðum hætti.“
Á þessum grundvelli telur eftirlitið ekki ástæðu til að aðhafast frekar í tenglsum við þennan samruna.