Íbúðum hér á landi fjölgaði um 1.759 í fyrra. Til samanburðar fjölgaði þeim um 1.580 árið 2016 og er aukningin því tæplega 200 íbúðir milli ára. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Íbúðalánasjóði sem send var út í dag.
Jafnframt kemur fram að fjölgunin hafi þó verið hægfara í samanburði við eftirspurn og fjölgun íbúða í fyrra hafi verið enn undir meðaltali síðustu tveggja áratuga. Íbúðum sé því enn að fjölga mun hægar en þörf er á og uppsafnaður skortur sé enn til staðar eftir hæga fjölgun íbúða undanfarin 8 ár.
Íbúðum fjölgaði mest í Mosfellsbæ eða um 401 íbúð. Næst kemur Reykjavík en þar fjölgaði íbúðum um 322 í fyrra samkvæmt tölum Þjóðskrár. Til samanburðar fjölgaði íbúðum í borginni um 635 árið 2016. Kópavogur er í þriðja sæti í fjölgun íbúða í fyrra, en íbúðum í bænum fjölgaði um 269 í fyrra borið saman við 168 árið 2016.
Ólafur Heiðar Helgason, hagfræðingur í hagdeild Íbúðalánasjóðs, sagði þegar ný greining Íbúðalánasjóðs og Íslenska byggingavettvangsins var kynnt í gær að ljóst væri að mikil þörf er á uppbyggingu húsnæðis víða um land. Það skipti miklu máli að sú uppbygging verði hagkvæm og í samræmi við þörf landsmanna. Um árabil hefðu Íslendingar búið við miklar sveiflur í húsnæðismálum. „Það þarf að minnka þessar sveiflur til þess að auka framleiðni, lækka byggingakostnað og tryggja að húsnæði fáist á viðráðanlegu verði fyrir almenning. Aukin framleiðni í byggingariðnaði er því ekki aðeins góð fyrir þá sem starfa í greininni sjálfri, heldur er hún lykilatriði til að stuðla að auknum stöðugleika í húsnæðismálum,“ sagði hann.
Þörf á 17.000 íbúðum næstu tvö ár
Í nýlegri skýrslu Íbúðalánasjóðs kemur fram að íbúðum þyrfti að fjölga um samtals 17.000 árin 2017 til 2019 til að mæta að fullu þörf og uppsöfnuðum skorti. Nú þegar liggur fyrir að íbúðum fjölgaði um tæplega 1.800 í fyrra má segja að íbúðum þyrfti að fjölga um um það bil 15.000 í ár og næsta ár, 2018 og 2019, til að mæta að fullu þörf og uppsöfnuðum skorti. Samkvæmt þessum upplýsingum er talið ólíklegt að uppbyggingarhraðinn verði nægjanlegur næstu tvö árin til að það náist að mæta þörf almennings fyrir íbúðir.
Sigrún Ásta Magnúsdóttir, deildarstjóri á húsnæðissviði Íbúðalánasjóðs, segir að þessar tölur séu áhyggjuefni en séu þær bornar saman við nýja greiningu hagdeildar Íbúðalánasjóðs um þörf á íbúðarhúsnæði kemur í ljós að líklega verður enn mikill skortur á íbúðum næstu 2 til 3 árin. Þessar nýju tölur um fjölgun íbúða sýni að langtímasýn og áætlanagerð í húsnæðismálum hefur verið ábótavant og að skortur hefur verið á áreiðanlegum upplýsingum.
„Tölurnar sýna okkur hversu mikilvægt það er að sveitarfélög marki stefnu í húsnæðismálum og geri áætlanir um hvernig þau ætla að mæta þeim mikla skorti sem ríkir á húsnæðismarkaði. Húsnæðisáætlanir sveitarfélaga eru lykilþáttur í því að stuðla að stöðugleika og sjá til þess að framboð húsnæðis mæti eftirspurn,“ segir Sigrún Ásta.