Sigríður Á. Andersen, dómsmálaráðherra, skipaði í dag Arnald Hjartarson, aðstoðarmann dómara við EFTA dómstólinn, í embætti héraðsdómara sem hafa mun fast sæti við Héraðsdóm Reykjavíkur.
Dómnefnd um hæfni umækjenda um embætti dómara skilaði á þriðjudag í síðustu viku niðustöðu sinni og mat hún Arnald hæfastan til að gegna embættinu.
Embættið var auglýst laust til umsóknar þann 17. nóvember síðastliðinn, en alls sóttu 30 um stöðuna en sex umsækjendur, sem skipaðir höfðu verið í embætti héraðsdómara frá 9. janúar síðastliðnum, drógu umsóknir sínar til baka. Dómnefndina skipuðu Jakob R. Möller, Kristín Benediktsdóttir, Guðrún Björk Bjarnadóttir, Ragnheiður Harðardóttir og Ragnhildur Helgadóttir.