„Þetta eru allt íslensk börn“

Lilja Dögg Alfreðsdóttir, mennta- og menningarmálaráðherra, segir það markmið sitt að börn af erlendum uppruna sem búa á Íslandi hafi sömu tækifæri í íslensku skólakerfi og önnur börn.

Auglýsing

Íslenskir grunn­skóla­nem­endur koma ár eftir ár lang­verst allra á Norð­ur­lönd­unum úr PISA-könn­un­inni svoköll­uðu. Í öllum fögum sem mæld eru er Ísland undir með­al­tali OECD-­ríkja og engin bæt­ing hefur verið í nið­ur­stöð­unum frá árinu 2012.

Brott­fall úr skóla er miklu meira hér en í nágranna­lönd­unum og feiki­legur munur er á getu nem­enda af erlendum upp­runa og þeirra sem fæð­ast hér­lendis þegar kemur að árangri í skóla. Þetta er meðal þess sem kom fram í skýrslu sem Nor­ræna ráð­herra­nefndin gaf út nýver­ið.

Lilja Dögg Alfreðs­dótt­ir, mennta- og menn­ing­ar­mála, var gestur sjón­varps­þáttar Kjarn­ans á Hring­braut sem frum­sýndur var á mið­viku­dag og ræddi þessar miklu áskor­an­ir. Þar fór hún líka yfir þær aðgerðir sem hún hyggst ráð­ast í til að takast á við kenn­ara­skort sem stefnir að óbreyttu í að verða mjög alvar­legur á næstu árum. Hægt er að sjá brot úr þætt­inum í spil­ar­anum hér að ofan.

Auglýsing

Varð­andi stöðu nem­enda af erlendum upp­runa, sem eiga mun erf­ið­ara um vik í íslensku mennta­kerfi en þau börn sem fæð­ast hér­lend­is, segir Lilja að hún hafi verið að hugsa um þau mál frá því að hún varð vara­for­maður mennta­ráðs Reykja­vík­ur­borgar árið 2006. Þá hafi henni þótt tími til að grípa til aðgerða. Og þess frekar nú, tólf árum síð­ar. „Við sjáum líka að þessu er mjög skipt eftir borg­ar­hlut­um. Í gamla skól­anum mín­um, Fella­skóla, þar er mjög hátt hlut­fall barna af erlendum upp­runa. Á gamla leik­skól­anum mín­um, Fella­borg, ég heyrði tölur um að það væru komin 90 pró­sent barna af erlendum upp­runa. Mitt mark­mið sem mennta­mála­ráð­herra er að þessi börn hafi sömu tæki­færi í íslensku skóla­kerfi eins og önnur börn. Þetta eru allt börn. Þetta eru allt íslensk börn.“

Hægt er að horfa á þátt­inn í heild sinni hér að neð­an:



Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent