Kim Jong Un lofar því að kjarnorkuáætlunin verði lögð til hliðar

Ráðamenn í Suður-Kóreu hafa miðlað málum að undanförnu og dregið hefur verulega úr spennunni á Kóreuskaga.

h_53458115.jpg
Auglýsing

Yfir­völd í Norð­ur­-Kóreu eru til­búin til þess að leggja kjarn­orku­á­ætlun sína á hill­una, í það minnst í bili. Með því yrði fram­leiðslu á kjarn­orku hætt sem og til­raunum með lang­drægar flaug­ar. 

Frá þessu er greint í umfjöllun The Guar­dian í dag, en mun betri sam­skipti eru nú milli Norð­ur- og Suð­ur­-Kóreu eftir Ólymp­íu­leik­ana í Suð­ur­-Kóreu. Á þeim komust á betri sam­skipta­leiðir milli ríkj­anna tveggja sem hafa leitt til þess, að Banda­ríkin eru til­búin til við­ræðna við Norð­ur­-Kóreu um að draga úr spenn­unni á Kóreu­skaga og tryggja frið. 

Don­ald Trump, Banda­ríkja­for­seti, sam­þykkti fyrr í mán­uð­inum að hitta ráða­menn frá Norð­ur­-Kóreu, þar á meðal leið­tog­ann Kim Jong Un, en setti það skil­yrði að fallið yrði frá kjarn­orku­á­ætlun Norð­ur­-Kóreu. 

Auglýsing

Sendi­nefndir Suð­ur­-Kóreu og Banda­ríkj­anna eru nú sagðar vera staddar í Finn­landi, þar sem þess er beðið að full­trúar yfir­valda í Norð­ur­-Kóreu komi til móts við þær og fundi um stöðu mála. 



Stefnt er að sam­eig­in­legri ráð­stefnu ríkj­anna í maí, þar sem umfjöll­un­ar­efnið yrði kjarn­orku­á­ætlun Norð­ur­-Kóreu og frið­ar­um­leit­an­ir. 

Mikil spenna hefur verið á Kóreu­skaga und­an­farin tvö ár, en til­raunir Norð­ur­-Kóreu með lang­drægar flaug­ar, og umfangs­miklar her­æf­ingar Banda­ríkj­anna og Suð­ur­-Kóreu, hafa leitt til eld­fims ástands. 

Sam­ein­uðu þjóð­irnar hafa beitt sér fyrir efna­hags­þving­unum gagn­vart Norð­ur­-Kóreu, sem enn eru í gildi. Meðal ann­ars hefur olíu­inn­flutn­ingur til lands­ins verið bann­aður að stórum hluta, sem hefur haft miklar og skyndi­legar efna­hagsaf­leið­ingar í för með sér. 

Íbúar á Kóreu­skaga eru um 75 millj­ón­ir. Rúm­lega 50 millj­ónir í Suð­ur­-Kóreu og 25 millj­ónir í Norð­ur­-Kóreu.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiErlent