Facebook skandallinn stærri en áður var talið

Cambridge Analytica komst yfir meira af notendaupplýsingum frá Facebook, með óeðlilegum hætti, en áður var talið.

h_53588326.jpg Mark Zuckerberg Facebook
Auglýsing

Grein­ing­ar- og ráð­gjafa­fyr­ir­tækið Cambridge Ana­lyt­ica komst yfir meira af upp­lýs­ingum um not­endur Face­book, með óeðli­legum hætti, heldur en áður var talið. 

Í fyrstu var frá því greint að fyr­ir­tækið hefði kom­ist yfir upp­lýs­ingar um 50 millj­ónir not­enda, en nú er talið að tæp­lega 90 millj­ónir hafi verið und­ir, að því er breska rík­is­út­varpið BBC greindi frá í kvöld.

Á meðal þess­ara tæp­lega 90 millj­óna er um 1,1 millj­ónir í Bret­landi, en lang­sam­lega flestir voru í Banda­ríkj­un­um. 

Auglýsing

Mark Zucker­berg, for­stjóri og stofn­andi Face­book, mun koma fyrir þing­nefnd í Banda­ríkj­unum 11. apr­íl, og mun hann þar  svara spurn­ingum sem lúta að per­sónu­frelsi not­enda og hvernig á því stóð að fyr­ir­tækið komst yfir meira af gögnum en leyfi­legt er að deila, sam­kvæmt skil­málum Face­book. 

Mark Zuckerberg er með öll spjót á sér þessi misserin.

Cambridge Ana­lyt­ica hefur unnið fyrir ýmis fyr­ir­tæki og sam­tök, þar á meðal fram­boð Don­alds Trumps og Brexit hreyf­ing­una í Bret­landi. Fyr­ir­tækið er nú til rann­sókn­ar, bæði í Bret­landi og Banda­ríkj­un­um, en það hefur varist ásök­unum og hafnað því að hafa gert nokkuð rangt.

Zucker­berg hefur hins vegar við­ur­kennt, að Face­bok hafi farið illa að ráði sínu og deilt of miklu magni gagna, miðað við það sem skil­málar fyr­ir­tæk­is­ins segja til um. Hann segir hins veg­ar, að nú standi yfir rann­sókn á þessum mál­um, bæði innan Face­book og hjá yfir­völd­um, og hann vilji bíða með nán­ari skýr­ing­ar. 

Verð­mið­inn á Face­book hefur fallið um 20 pró­sent frá því málið komst í hámæli, fyrir rúm­lega þremur vik­um, en mark­aðsvirði fyr­ir­tæk­is­ins er nú 450 millj­arðar Banda­ríkja­dala, eða sem nemur um 45 þús­und millj­örðum króna. 

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiErlent