Viðreisn hyggst tefla fram eigin lista í Hafnarfirði í sveitarstjórnarkosningunum 26. maí, en hætt hefur verið við fyrirhugað sameiginlegt framboð Viðreisnar og Bjartrar framtíðar í Hafnarfirði.
Eins og greint var frá á vef Kjarnans í dag, þá er töluverð ólga innan Bjartrar framtíðar í bænum, og því er orðið ljóst að ekkert verður af sameiginlegu frambði.
Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, formaður Viðreisnar, staðfesti við Vísi í dag að Viðreisn færi fram með eigin framboð í Hafnarfirði.
Björt Ólafsdóttir, formaður Bjartrar framtíðar, segir á Facebook síðu sinni, að ljóst sé, að framboðið fyrirhugaða sé í „upplausn“. „Eftir allt sem á undan er gengið er ljóst að framaboð í Hafnafirði er í upplausn. Þar er fólk þreytt eftir átök og rugling og þau sem skipuðu sæti á sameiginlegum lista Bjartrar Framtíðar og Viðreisnar hafa dregið sig í hlé með miklum trega og eftirsjá,“ segir Björt.
Eins og greint var frá í dag, þá hafa tveir varabæjarfulltrúar í Hafnarfirði, þau Borghildur Sölvey Sturludóttir og Pétur Óskarsson, óskað eftir að samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytið taki til umfjöllunar ákvarðanir Guðlaugar Kristjánsdóttur um setu í og úr bæjarstjórn og hins vegar missi kjörgengis og þá samhliða lausn frá störfum bæjarfulltrúans Einars Birkis Einarssonar.
Hefur lögmaður þeirra sent ráðuneytinu formlegt erindi þessa efnis, að það taki málið til formlegrar athugunar á grundvelli sveitarstjórnarlaga þar sem mælt er fyrir um almennt stjórnsýslueftirlit ráðherra með því að sveitarfélög gegni skyldum sínum. Verði málið ekki tekið til umfjöllunar formlega af ráðuneytinu áskilja þau sér rétt til að leggja fram stjórnsýslukæru vegna málsins.
Vilja þau meina að Guðlaug hafi farið í ótímabundið leyfi frá störfum á grundvelli ákvæðis sveitarstjórnarlaga sem geri ráð fyrir fjarveru í að minnsta kosti einn mánuð vegna forfalla. Var tilkynnt um forföll Guðlaugar þann 14. mars en hún tók sæti sitt aftur í sveitarstjórninni á fundi hennar í gær. Vilja þau Borghildur og Pétur meina að þar sem hún hafi verið styttri tíma en einn mánuð frá störfum stangist það á við lagaákvæðið.
Síðara umkvörtunarefni þeirra í erindinu lýtur að kjörgengi Einars Birkis Einarssonar. Þar vísa þau til þess að Einar sé með lögheimili í Hafnarfirði á heimili systur sinnar. hann hins vegar búi í Kópavogi ásamt sambýliskonu sinni. Í lögum um kosningar til sveitarstjórnar segir að kjörgengur sé sá sem meðal annars á kosningarétt í sveitarfélaginu en þar er gerður áskilnaður um lögheimili í sveitarfélaginu. Vilja þau að ráðuneytið afli upplýsinga frá Einari um búsetu hans svo unnt sé að staðfesta hvort hann njóti enn kjörgengis eða hvort leysa beri hann frá störfum sökum missi þess.