Atvinnuleysi innan Evrópusambandsins heldur áfram að minnka

Hagvöxtur innan Evrópusambandsins heldur áfram að vera sterkur. Í fyrra var hann sá mesti í áratug. Atvinnuleysi heldur áfram að minnka og hefur ekki verið minna frá því fyrir hrun. Verðbólga er 1,4 prósent.

Emmanuel Macron, Angela Merkel og Jean-Claude Juncker, framkvæmdastjóri Evrópusambandsins.
Emmanuel Macron, Angela Merkel og Jean-Claude Juncker, framkvæmdastjóri Evrópusambandsins.
Auglýsing

Atvinnu­leysi innan Evr­ópu­sam­bands­ins heldur áfram að lækka. Í mars síð­ast­liðnum var það 7,1 pró­sent. Í nóv­em­ber síð­ast­liðnum mæld­ist atvinnu­leysi í öllum aðild­ar­ríkj­unum 28 7,3 pró­sent sem var minnsta atvinnu­leysi sem mælst hefur innan sam­bands­ins frá því í hrun­mán­uð­inum októ­ber 2008, eða í rúm níu ár.  Þetta kemur fram í nýjum tölum frá Eurostat, hag­­stofu Evr­­ópu­­sam­­bands­ins.

Þar segir að fjöldi atvinnu­lausra innan Evr­ópu­sam­bands­ríkj­anna hafi verið 17,5 millj­ónir í mars­mán­uði. Þar af bjuggu 13,8 millj­ónir þeirra innan þeirra ríkja sem eru með evru sem gjald­mið­il, en atvinnu­leysi innan þess svæðis mæld­ist 8,5 pró­sent. Það er minnsta atvinnu­leysi sem mælst hefur innan evru­svæð­is­ins frá því í lok árs 2008.

Minnst mæld­ist atvinnu­leysið í Tékk­landi (2,1 pró­sent), Möltu (3,3 pró­sent) og í Þýska­landi (3,4 pró­sent). Það mælist hins vegar lang­mest í Grikk­landi (20,6 pró­sent), Spáni (16,1 pró­sent) og á Ítalíu (11,0 pró­sent). Atvinnu­leysið í Grikk­landi hefur þó minnkað mest allra aðild­ar­ríkja á und­an­förnum árum, en það var 23,2 pró­sent haustið 2016.

Auglýsing

Til sam­an­­burðar má nefna að atvinn­u­­leysi í Banda­­ríkj­unum var 4,1 pró­­sent í mars 2018. Á Íslandi var það 2,4 pró­­sent í apríl síð­ast­liðn­um.

Atvinnu­leysi ung­menna dregst líka saman

Atvinn­u­­leysi á meðal ungs fólks hefur lengi verið mikið vanda­­mál í sumum Evr­­ópu­­sam­­bands­­ríkj­um, sér­­stak­­lega Grikk­landi (42,3 pró­sent), Spáni (35 pró­sent) og Ítal­íu (31,7 pró­sent). Vert er að taka fram að þetta eru þau þrjú lönd heims sem talin eru vera með stærstu svörtu hag­­kerfin. Tölur Eurostat ná ekki yfir þá sem stunda svarta atvinn­u­­starf­­semi.

Alls voru 3,5 millj­ónir manna undir 25 ára aldri atvinnu­lausir í löndum Evr­ópu­sam­bands­ins í mars síð­ast­liðn­um, og 2,5 millj­ónir þeirra voru frá ríkjum innan evru­svæð­is­ins. Atvinnu­lausum ung­mennum innan sam­bands­ins hefur fækkað um 409 þús­und frá mars­mán­uði 2017.

Lág verð­bólga og stöð­ugur vöxtur

Verð­bólga er almennt lág innan Evr­ópu­sam­bands­ins. Hún mælist nú 1,4 pró­sent en var tvö pró­sent fyrir ári síðan og fór yfir fjögur pró­sent í kringum hrun­ið. Innan evru­svæð­is­ins mælist verð­bólgan 1,2 pró­sent og hefur lækkað um 0,7 pró­sentu­stig á einu ári. Til sam­an­burðar er verð­bólga á Íslandi 2,3 pró­sent og 2,5 pró­sent í Banda­ríkj­un­um.

Efna­hagur Evr­­ópu­­sam­­bands­­ríkj­anna hefur stöðugt verið að styrkj­­ast á und­an­­förnum árum. Árið 2016 var til að mynda meiri hag­vöxtur á evru­svæð­inu en í Banda­­ríkj­unum og var það í fyrsta sinn frá hruni sem það gerð­ist.

Hag­vöxtur á síð­asta ári var 2,4 pró­sent og spár gera ráð fyrir því að hann verði í kringum tvö pró­sent í ár og á næsta ári. Það er mesti hag­vöxtur sem orðið hefur innan sam­­bands­ins í ára­tug. Evru­svæðið vex hraðar en Bret­land, sem ætlar að segja sig úr sam­band­inu vorið 2019.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiErlent