Alls sóttu 25 um embætti forstjóra Vegagerðarinnar. Samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra skipar í embættið til fimm ára og er miðað við að skipunin taki gildi 1. júlí næstkomandi.
Þetta kemur fram í frétt samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytisins í dag.
Kjarninn greindi frá því fyrir helgi að umsóknarfrestur hefði framlengst um tvær vikur vegna þess að það láðist að auglýsa embætti forstjóra Vegagerðarinnar í Lögbirtingablaðinu.
Í frétt ráðuneytisins segir að þriggja manna nefnd hafi verið skipuð til að meta hæfni umsækjenda. Hún starfi í samræmi við lög um réttindi og skyldur starfsmanna ríkisins og hafi til hliðsjónar reglur um ráðgefandi nefndir sem meta hæfni umsækjenda um embætti við Stjórnarráð Íslands.
Í nefndinni eiga sæti Ari Kristinn Jónsson, rektor Háskólans í Reykjavík, Aðalsteinn Ingólfsson, forstjóri Skinneyjar-Þinganess og Guðný Elísabet Ingadóttir, mannauðsstjóri samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytisins.
Umsækjendur eru:
- Ásrún Rudolfsdóttir, forstöðumaður
- Bergþóra Þorkelsdóttir, fyrrv. forstjóri
- Bjarki Einarsson, sjómaður
- Bjarni Óskar Halldórsson, sjálfstætt starfandi ráðgjafi
- Einar Pálsson, forstöðumaður
- Einar Pálsson, kennari
- Guðmundur Valur Guðmundsson, forstöðumaður
- Hannes Alfreð Hannesson, fyrrv. framkvæmdastjóri
- Ingunn Loftsdóttir, verkefnastjóri
- Kristín Einarsdóttir, sviðsstjóri
- Kristín Linda Árnadóttir, forstjóri
- Lilja Guðríður Karlsdóttir, framkvæmdastjóri
- Magnús Rannver Rafnsson, lektor
- Magnús Valur Jóhannsson, framkvæmdastjóri
- Ottó Valur Winther, sérfræðingur
- Ólafur Kristinn Guðmundsson, tæknistjóri
- Ólöf Kristjánsdóttir, fagstjóri
- Óskar Örn Jónsson, forstöðumaður
- Ragnheiður I. Þórarinsdóttir, forstöðumaður
- Róbert Ragnarsson, sjálfstætt starfandi ráðgjafi
- Runólfur Ágústsson, framkvæmdastjóri
- Sesselja Traustadóttir, framkvæmdastýra
- Sigurður Áss Grétarsson, framkvæmdastjóri
- Steindór Steindórsson, þjónustufulltrúi
- Þorsteinn Egilsson, svæðisstjóri