Skráðir notendur íslenskunámskeiðsins Icelandic Online eru nú komnir yfir tvö hundruð þúsund en vefurinn hefur nýst nemendum í íslensku út um allan heim síðan árið 2004. Þetta kemur fram í frétt mennta- og menningarmálaráðuneytisins.
Enn fremur segir að í tilefni af ársfundi Stofnunar Árna Magnússonar í íslenskum fræðum á dögunum hafi Lilja Alfreðsdóttir mennta- og menningarmálaráðherra opnað vefgátt sem hýsir nýjustu gerð Icelandic Online.
Í kynningu sinni á verkefninu gat Úlfar Bragason rannsóknarprófessor þess að aldrei hefðu fleiri talað né kosið að læra íslensku en nú.
Aðlaga kerfið fyrir börn
Lilja sagði á ársfundinum að það væri afar gleðilegt að fá svo góðar fréttir af íslenskunni – það vildi brenna við að meira væri fjallað um ógnir sem henni tengjast en Íslendingar þyrftu að hampa því sem virkar og vel er gert. Í ávarpi sínu ræddi hún sérstaklega um mikilvægi þess að líta ekki aðeins á örar tæknibreytingar sem áskorun fyrir íslenskuna heldur einnig tækifæri. „Við þurfum að taka þátt í þróuninni og nýta nýjustu tækni til hagsbóta fyrir íslenskt málsamfélag og þá fjölmörgu sem vilja læra íslensku,“ sagði hún.
Samkvæmt ráðuneytinu talaði hún jafnframt um það að börnum og ungmennum af erlendum uppruna hefði fjölgað í skólakerfinu en um þessar mundir er einmitt unnið að því að aðlaga kennsluumhverfi Icelandic Online fyrir börn.
„Ekki aðeins hafi notendum Icelandic Online vefjarins fjölgað jafnt og þétt gegnum árin heldur fjölgar þeim einnig sem leggja stund á íslenskunám við erlenda háskóla, sækja nám í íslensku við Háskóla Íslands og Háskólasetrið á Vestfjörðum og í námsflokkum víða um land. Námsbraut í íslensku sem öðru máli sem kennd er við HÍ nýtur einnig vaxandi vinsælda – nemendafjöldi hefur rúmlega tvöfaldast á síðustu 10 árum og stunduðu 380 nemendur þar nám á síðasta ári,“ segir í fréttinni.