Skráðir notendur Icelandic Online yfir 200.000

Aldrei hafa fleiri kosið að læra íslensku en nú.

haskoli-islands_14524139113_o.jpg
Auglýsing

Skráðir not­end­ur ­ís­lensku­nám­skeiðs­ins Icelandic Online eru nú komnir yfir tvö hund­ruð þús­und en vef­ur­inn hefur nýst nem­endum í íslensku út um allan heim síðan árið 2004. Þetta kemur fram í frétt mennta- og menn­ing­ar­mála­ráðu­neyt­is­ins. 

Enn fremur segir að í til­efni af árs­fundi Stofn­unar Árna Magn­ús­sonar í íslenskum fræðum á dög­unum hafi Lilja Alfreðs­dóttir mennta- og menn­ing­ar­mála­ráð­herra opnað vef­gátt sem hýsir nýj­ustu gerð Icelandic Online. 

Í kynn­ingu sinni á verk­efn­inu gat Úlfar Braga­son rann­sókn­ar­pró­fessor þess að aldrei hefðu fleiri talað né kosið að læra íslensku en nú.

Auglýsing

Aðlaga kerfið fyrir börn

Lilja Alfreðsdóttir, mennta- og menningarmálaráðherra.Lilja sagði á árs­fund­inum að það væri afar gleði­legt að fá svo góðar fréttir af íslensk­unni – það vildi brenna við að meira væri fjallað um ógnir sem henni tengj­ast en Íslend­ingar þyrftu að hampa því sem virkar og vel er gert. Í ávarpi sínu ræddi hún sér­stak­lega um mik­il­vægi þess að líta ekki aðeins á örar tækni­breyt­ingar sem áskorun fyrir íslensk­una heldur einnig tæki­færi. „Við þurfum að taka þátt í þró­un­inni og nýta nýj­ustu tækni til hags­bóta fyrir íslenskt mál­sam­fé­lag og þá fjöl­mörgu sem vilja læra íslensku,“ sagði hún­.  

Sam­kvæmt ráðu­neyt­inu tal­aði hún jafn­framt um það að börnum og ung­mennum af erlendum upp­runa hefði fjölgað í skóla­kerf­inu en um þessar mundir er einmitt unnið að því að aðlaga kennslu­um­hverfi Icelandic Online fyrir börn.

„Ekki aðeins hafi not­endum Icelandic Online vefj­ar­ins fjölgað jafnt og þétt gegnum árin heldur fjölgar þeim einnig sem leggja stund á íslensku­nám við erlenda háskóla, sækja nám í íslensku við Háskóla Íslands og Háskóla­setrið á Vest­fjörðum og í náms­flokkum víða um land. Náms­braut í íslensku sem öðru máli sem kennd er við HÍ nýtur einnig vax­andi vin­sælda – nem­enda­fjöldi hefur rúm­lega tvö­fald­ast á síð­ustu 10 árum og stund­uðu 380 nem­endur þar nám á síð­asta ári,“ segir í frétt­inn­i. 

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent