Frjósemi íslenskra kvenna árið 2017 var 1,71 barn á ævi hverrar konu og hefur hún aldrei farið lægra frá því að mælingar hófust árið 1853. Árið 2016 var frjósemi 1,75 en það er næst lægsta frjósemi sem mælst hefur hér á landi. Undanfarinn áratug hefur frjósemi á Íslandi verið rétt um tvö börn á ævi hverrar konu.
Þetta kemur fram í frétt Hagstofunnar.
Árið 2017 fæddust 4.071 barn á Íslandi, sem er fjölgun frá árinu 2016 þegar 4.034 börn fæddust. Alls fæddust 2.112 drengir og 1.959 stúlkur en það jafngildir 1.078 drengjum á móti hverjum 1.000 stúlkum.
Helsti mælikvarði á frjósemi er fjöldi lifandi fæddra barna á ævi hverrar konu. Yfirleitt er miðað við að frjósemi þurfi að vera um 2,1 barn til þess að viðhalda mannfjöldanum til lengri tíma litið.
Meðalaldur mæðra hækkar
Í fréttinni kemur enn fremur fram að frjósemi á Íslandi hafi verið með því mesta sem þekkist í Evrópu á síðustu árum en árið 2016 hafi frjósemi verið undir tveimur í öllum löndum Evrópusambandsins. Frjósemi var að meðaltali 1,6 í 28 löndum Evrópusambandsins árið 2016, mest var hún í Frakklandi eða 1,92. Síðustu ár hefur fæðingartíðni innan álfunnar verið lægst í löndum Suður-Evrópu og er árið 2016 engin undantekning, en fæðingartíðni var 1,34 á Spáni og Ítalíu og 1,36 í Portúgal.
Meðalaldur mæðra hefur hækkað jafnt og þétt síðustu áratugi og eignast konur nú sitt fyrsta barn síðar á ævinni en áður var. Frá byrjun sjöunda áratugarins og fram yfir 1980 var meðalaldur frumbyrja undir 22 árum en eftir miðjan níunda áratuginn hefur meðalaldurinn hækkað og var 27,8 ár í fyrra. Algengasti barneignaaldurinn er á milli 25 til 29 ára. Á þessu aldursbili fæddust 108 börn á hverjar 1.000 konur í fyrra.
Fæðingartíðni mæðra undir tvítugu í fyrra var 5,9 börn á hverjar 1.000 konur. Það er afar lágt miðað við þegar hún fór hæst á árabilinu 1961 til 1965 en þá fæddust 84 börn á hverjar 1.000 konur undir tvítugu. Til samanburðar var meðalaldur frumbyrja 29 ár í 28 löndum Evrópusambandsins árið 2016, yngstar voru frumbyrjur í Búlgaríu eða 26 ára en elstar á Ítalíu eða 31 árs.
Tæplega 30% barna fæðast innan hjónabands
Árið 2017 fæddust 28,8 prósent barna á Íslandi í hjónabandi. Rúmlega 56 prósent barna fæddust í óvígðri sambúð og 14,8 prósent fæddust því utan sambúðar eða hjónabands. Af 28 löndum Evrópusambandsins fæðast um 40 prósent barna utan hjónabands. Næstólíklegast, á eftir Íslandi, er að börn fæðist innan hjónabands í Frakklandi, eða 59,7 prósent, Slóveníu og Búlgaríu, 58,6 prósent. Til samanburðar fæðast varla börn utan hjónabands í Tyrklandi, eða 2,9 prósent, og það sama má segja um Grikkland eða 9,4 prósent.