Prófessor telur Viðreisn ganga til liðs við meirihlutann

Ólafur Þ. Harðarson prófessor í stjórnmálafræði telur Viðreisn eiga meira sameiginlegt með fráfarandi meirihlutaflokkum í Reykjavík en hinum flokkunum.

ólafur dagur lóa
Auglýsing

Ólafur Þ. Harð­ar­son pró­fessor í stjórn­mála­fræði hefur greint þá stöðu sem honum finnst lík­leg­ust í meiri­hluta­myndun í Reykja­vík. Í stöðu­upp­færslu á Face­book segir Ólafur að hann telji lík­egra að Við­reisn fari með Sam­fylk­ingu, Vinstri grænum og Pírötum en Sjálf­stæð­is­flokki, Mið­flokki og Flokki fólks­ins.

­Fyrir þessu nefnir Ólafur rök­semda­færslu í fimm lið­um.

Í fyrsta lagi að Við­reisn sé nær þeim fyrr­nefndu í skipu­lags­mál­um. Sjálf­sagt nær Sjálf­stæð­is­flokki um mark­aðs­lausnir, en skipu­lags­málin hafi verið fyr­ir­ferð­ar­meiri í kosn­inga­bar­átt­unni.

Auglýsing

Þá nefnir Ólafur að sam­kvæmt Gallup kom 51 pró­sent af fylgi Við­reisnar núna frá Bjartri fram­tíð og Sam­fylk­ingu 2014 (27% frá BF og 24% frá S). Um 17 pró­sent komu frá Sjálf­stæð­is­flokki, 7 pró­sent frá Vinstri græn­um, 5 pró­sent frá Píröt­um, 4 pró­sent frá Fram­sókn og 15 pró­sent frá þeim sem kusu ekki árið 2014. „Þessi hegðun kjós­enda er á skjön við þá mynd að Við­reisn sé bara klofn­ingur úr D. 63% kjós­enda Við­reisnar komu frá þeim sem kusu frá­far­andi meiri­hluta 2014,“ skrifar Ólaf­ur.

Í þriðja lagi segir hann kjós­enda­prófíla Við­reisnar í Reykja­vík, til dæmis ald­ur, skóla­göngu og búsetu í hverf­um, miklu lík­ari prófílum Sam­fylk­ingar og Pírata en Sjálf­stæð­is­flokks­ins, Mið­flokks­ins og Flokks fólks­ins.

Ólafur nefnir einnig að margir for­ystu­menn Við­reisnar séu vissu­lega „flótta­menn“ úr Sjálf­stæð­is­flokki. „En reynslan sýnir að oft er lít­ill kær­leikur milli fyrrum flokks­fé­laga þegar leiðir hafa skil­ið. Td. verður fróð­legt að sjá hvað ger­ist í Vest­manna­eyj­u­m.“

Síð­ast segir Ólafur borg­ar­stjóra­stól­inn vera samn­ings­at­riði. Hann heldur að bæði Dagur og Eyþór vildu frekar vera í meiri­hluta en minni­hluta, jafn­vel þó þeir fengju ekki þann stól. Dagur hafi verið for­maður borg­ar­ráðs 2010 til 2014, en Jón Gnarr borg­ar­stjóri. Besti flokk­ur­inn hafi reyndar verið stærri en Sam­fylk­ing.

„En allt er sosum opið og afar áhuga­vert að sjá hvernig kap­all­inn spilast,“ segir Ólafur að lok­um.

Stöðuuppfærsla Ólafs.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent