Hlé hefur verið gert á þingfundi fjórum sinnum í dag til að ríkisstjórnarflokkarnir og stjórnarandstaðan geti fundað um áframhaldandi þingstörf og freistað þess að ná sáttum.
Heimildir Kjarnans herma að verið sé að reyna að semja um hvernig fara eigi með veiðigjaldafrumvarpið, sem lagt var fram flestum að óvörum í lok síðustu viku. Þar er gert ráð fyrir því að heimild til töku veiðigjalda yfir höfuð verði framlengd, hún byggi á afkomu nýliðins árs en ekki þriggja ára aftur í tímann, sem mun þýða 1,7 milljarða króna lækkun gjaldanna sem greiðast eiga á þessu almanaksári og þar að auki gefinn afsláttur til minni útgerða.
Stemmningin á þinginu er eldfim, stjórnarandstaðan hefur þannig verið afar harðorð um veiðigjaldafrumvarpið, sem lagt var fram af meirihluta atvinnuveganefnar. Vilja stjórnarandstöðuliðar meina að mestur hluti lækkunarinnar muni gagnast stærri útgerðunum best.
Fyrir þinginu, búið er að samþykkja að starfi lengur en samkvæmt starfsáætlun, liggja nokkur afar umfangsmikil mál. Persónuverndarfrumvarpið, veiðigjaldamálið og einnig síðari umræða um fjármálaáætlun. Öll málin munu krefjast mikillar umræðu og herma heimildir Kjarnans að stjórnarandstaðan sé nokkuð samstillt þegar kemur að áætlunum um að kæfa hækkun veiðigjaldsins, jafnvel með málþófi. Fleiri mál eru eftir, misumfangsmikil, eins og til dæmis umræða um Byggðaáætlun næstu fimm ára.
Öll málin verða að klárast á þessu þingi. Núgildandi veiðigjaldaákvæði renna út þann 31. ágúst næstkomandi og verði ekkert gert þýðir það að engin veiðigjöld verða innheimt síðustu fjóra mánuði ársins. Persónuverndarfrumvarpið, sem er 147 blaðsíður að lengd, er innleiðing á Evrópulöggjöf sem er hluti af EES-samningnum. Evrópsku reglurnar hafa þegar tekið gildi sem þýðir að það liggur á að taka þær upp í íslenskan rétt. Seinni umræða um fjármálaáætlunina er síðan lögbundin, en þyrfti tæknilega séð ekki að taka svo langan tíma - þó líklegra sé að svo verði og færa megi rök fyrir að slíkt sé faglegra en hitt.
Heimildir Kjarnans herma einnig að þingmenn vonist til að hægt verði að ljúka þingstörfum fyrir þjóðhátíðardaginn 17. júní.