VÍS vill greiða hluthöfum sínum arð með bréfum í Kviku banka

Stjórn VÍS hefur samþykkt að ráðast í vegferð sem í felst að lækka hlutafé í félaginu með því að láta hluthafa þess fá bréf í Kviku banka. VÍS er sem stendur stærsti eigandi Kviku. Í eigendahópi bankans eru líka stórir hluthafar í VÍS.

Stjórn VÍS hefur samþykkt að stefna að breytingu á fjármagnsskipan sem yrði í takt við það sem þekkist hjá tryggingafélögum á hinum Norðurlöndunum. Á myndina vantar Helgu Hlín Hákonardóttur, nýjan stjórnarformann VÍS.
Stjórn VÍS hefur samþykkt að stefna að breytingu á fjármagnsskipan sem yrði í takt við það sem þekkist hjá tryggingafélögum á hinum Norðurlöndunum. Á myndina vantar Helgu Hlín Hákonardóttur, nýjan stjórnarformann VÍS.
Auglýsing

Á kynn­ing­ar­fundi sem haldin var fyrir hlut­hafa VÍS í gær var kynnt til­laga um að lækka hlutafé í félag­inu um 1,8 millj­arð króna með því að greiða hlut­höfum með hluta­bréfum VÍS í Kviku banka. Til­lagan verður tekin fyrir á hlut­hafa­fundi í trygg­inga­fé­lag­inu sem haldin verður 27. júní næst­kom­andi.

Verði til­lög­unni hrint í fram­kvæmd mun eig­in­fjár­hlut­fall VÍS fara úr 33,8 pró­sent í 31 pró­sent en geng­is­hagn­aður af sölu bréf­anna í Kviku, sem á að fara frá á geng­inu 7,2 krónur á hlut, mun tekju­fær­ast í rekstur félags­ins. 

Þetta kemur fram í kynn­ing­arglærum sem birt voru í Kaup­höll Íslands í gær­kvöldi. Stærstu eig­endur VÍS eru þrír íslenskir líf­eyr­is­sjóðir og vog­un­ar­sjóð­ur­inn Lands­downe partners.

VÍS er sem stendur langstærsti eig­andi Kviku banka með 21,77 pró­sent eign­ar­hlut. Fjórði stærsti eig­andi bank­ans er félagið K2B fjár­fest­ingar með 7,4 pró­sent hlut. Það félag er í eigu hjón­anna Svan­hildar Nönnu Vig­fús­dóttur og Guð­mundar Þórð­ar­son­ar, sem eiga 6,8 pró­sent hlut í VÍS í gegnum tvö félög, Heddu eign­ar­halds­fé­lag og áður­nefnt K2B fjár­fest­ing­ar. 

Auglýsing
Svanhildur Nanna var stjórn­ar­for­maður VÍS frá því í mars 2017 og þangað til fyrir rúmri viku síð­an, þegar hún steig hún niður tíma­bundið „af per­sónu­legum ástæð­u­m“. Þær ástæður voru að dag­inn áður hafði hún verið hand­tek­inn vegna Skelj­ungs­máls­ins svo­kall­aða. Svan­hildur Nanna er þó enn í stjórn VÍS. Guð­mund­ur, eig­in­maður henn­ar, situr í stjórn Kviku banka og sam­kvæmt fréttum hefur hand­taka hans í síð­ustu viku engin áhrif á stöðu hans þar.

Kjarn­inn hefur greint ítar­lega frá því máli á und­an­förnum dög­um.

Í stjórn VÍS sitja Gestur Breið­fjörð Gests­son, Svan­hildur Nanna Vig­fús­dótt­ir, Jón Sig­urðs­son, Valdi­mar Svav­ars­son og Helga Hlín Hákon­ar­dótt­ir, sem er nýtekin við sem stjórn­ar­for­mað­ur.

Háð sam­þykki FME og hlut­hafa­fundar

Í kynn­ing­arglær­unum sem birtar voru í gær er sam­an­tekt þar sem fram kemur að veg­ferð þeirra til­lagna sem stjórn VÍS hafi þegar sam­þykkt sé að „stefna að breyt­ingu á fjár­magns­skipan sem yrði í takt við það sem þekk­ist hjá trygg­inga­fé­lögum á hinum Norð­ur­lönd­un­um“. Gangi þessar til­lögur eft­ir, mun eig­in­fjár­hlut­fall VÍS lækka hratt á næstu árum og fara úr 33,8 pró­sent í 25-28 pró­sent eftir þrjú til fimm ár.

Stærsta breyt­ingin í þess­ari veg­ferð er að lækka hlutafé um 250 millj­ónir króna á nafn­virði á geng­inu 7,2 krónur á hlut. Það þýðir að virði við­skipt­anna yrði 1,8 millj­arður króna. Gengið er undir mark­aðs­gengi Kviku banka, sem er skráð á First North mark­að­inn. Gengi bréfa bank­ans þar í dag er 7,45 krónur á hlut.

Í áætl­un­inni kemur fram að aðgerðin sé háð sam­þykki Fjár­mála­eft­ir­lits­ins og hlut­hafa­fund­ar, sem hald­inn verður 27. júní næst­kom­andi. Þar segir einnig að boð­ist verði til þess að kaupa bréf af minni hlut­höfum í VÍS í fram­tíð­inni.



Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent