Ísland og Argentína gerðu 1-1 jafntefli í fyrsta leik Íslands á HM. Alfreð Finnabogason skoraði mark Íslands en Sergio Aguero mark Argentínu.
Hannes Þór Halldórsson varði glæsilega víti frá stórstjörnunni Lionel Messi, sem íslenska liðið lokaði nær alveg á með mögnuðum og vel skipulögðum varnarleik.
Liðið var samstillt og greinilega tilbúið í mikil átök. Hver einasti maður liðsins gaf allt sitt í leikinn.
Auglýsing
Sannarlega stórkostleg úrslit fyrir Ísland, sem nú á tvo leiki eftir í riðlakeppninni, gegn Nígeríu og Króatíu.