Fjárfestingarfélagið Stoðir (áður FL Group) er stærsti íslenski einkafjárfestirinn í hluthafahópi Arion banka, en félagið á 0,6 prósenta hlut í bankanum sem metinn er á tæplega milljarð íslenskra króna. Þetta kemur fram í frétt Markaðsins á Fréttablaðinu í dag.
Samkvæmt fréttinni skráðu Stoðir sig fyrir í kringum 100 milljónum hluta í útboðinu, eða sem jafngildir 7,5 milljörðum miðað við útboðsgengi, en fékk einungis 12% af því, eða tæplega milljarð, úthlutað í bankanum. Meðal annarra einkafjárfesta í bankanum er Vogun hf., en Kristján Loftsson og fjölskylda er stærsti hluthafi þess félags í gegnum Fiskveiðihlutafélagið Venus. Arion banki er sjálfur á meðal stærstu hluthafa Stoða með um 16 prósenta hlut.
Hverjir eiga Stoði?
Stoðir, sem áður hét FL Group, fór með himinskautum fyrir bankahrun sem eitt umsvifamesta fjárfestingafélag bankabólunnar. Þegar Glitnir, stærsta eign FL Group, féll var ljóst að félagið myndi ekki lifa af. Það fór í greiðslustöðvun og síðar í gegnum nauðasamninga þar sem kröfuhafar eignuðust félagið. Stærstur þeirra var Glitnir, bankinn sem félagið hafði átt stóran hlut í.
Síðustu ár hafa Stoðir hægt og rólega selt eignir sínar og greitt afraksturinn til kröfuhafa. Í fyrravor seldi svo GlitnirHoldco 40 prósent í félaginu á meðan tvö félög, S121 ehf. og S122 ehf., keyptu rúman 50 prósenta hlut. Félögin tvö eru í eigu stórra hluthafa í Tryggingarmiðstöðunni sem voru margir hverjir lykilmenn í FL Group á árunum fyrir hrun.
5 milljarða hagnaður
Síðastliðinn mars seldu Stoðir, í gegnum eignarhaldsfélagið Ferskur Holding 1, tæpan 9% eignarhlut sinn í hollenska drykkjarvöruframleiðandanum Refresco, en yfirtökutilboðið var samþykkt af Refresco í október í fyrra. Söluvirðið nam 144 milljónum evra, sem jafngildir um 18 milljörðum íslenskra króna. Hlutur Stoða var metinn á um 12,7 milljarða króna um áramótin 2016/2017, sem þýðir að félagið hagnaðist um rúma fimm milljarða á síðasta ári. Með hagnaði síðasta árs hækkaði eigið fé félagsins einnig um fimm milljarða, en það stendur nú í 18,3 milljörðum íslenskra króna samkvæmt síðasta ársreikningi.
Formaður stjórnar Stoða er Jón Sigurðsson, en með honum í stjórn sitja þeir Sigurjón Pálsson og Örvar Kærnested. Framkvæmdastjóri félagsins er Júlíus Þorfinnsson.