Minnsti innleiðingarhalli Íslands síðan 2010

Umtalsvert hefur dregið úr innleiðingarhalla tilskipana og reglugerða sem falla undir EES samninginn og er hann í tilviki Íslands sá minnsti frá árinu 2010. Þetta er niðurstaða 42. frammistöðumats Eftirlitsstofnunar EFTA.

Íslenska skjaldamerkið.
Íslenska skjaldamerkið.
Auglýsing

Veru­lega hefur dregið úr inn­leið­ing­ar­halla Íslands, bæði hvað varðar EES-til­skip­anir og reglu­gerð­ir. Miklar breyt­ingar eru hjá Íslandi í frammi­stöðu­mati sem ­Eft­ir­lits­stofn­unar EFTA sendi frá sér í dag. Inn­leið­ing­ar­halli til­skip­ana er 1 pró­sent sam­an­borið við 1,8 pró­sent í síð­asta frammi­stöðu­mati og hefur ekki verið minni frá nóv­em­ber 2010. Inn­leið­ing­ar­halli reglu­gerða er 0,8 pró­sent sam­an­borið við 1,2 pró­sent áður sem er að sama skapi sá lægsti frá árinu 2016 þegar ESA birti slíkar tölur í fyrsta sinn.

Frammi­stöðu­matið sýnir stöðu inn­leið­ingar á EES gerðum í EFTA ríkj­un­um, Íslandi, Liechten­stein og Nor­egi. Í til­kynn­ingu frá ESA kemur fram að nið­ur­staðan stað­festi sterka áherslu ríkj­anna á greiða fram­kvæmd EES samn­ings­ins. Ríkin eru hvött til þess að halda áfram á þess­ari braut.

Högni Krist­jáns­son, stjórn­ar­maður ESA, segir að þessi mikli árangur í að draga úr inn­leið­ing­ar­halla til­skip­ana og reglu­gerða á Íslandi, sem og í öðrum EFTA ríkj­um, lýsi vel traustu sam­starfi EFTA ríkj­anna og vilja þeirra til þess að vinna saman að öfl­ugum innri mark­aði.

Auglýsing

Jafn­framt kemur fram í frammi­stöðu­mat­inu að í til­viki Nor­egs dragi á ný úr inn­leið­ing­ar­halla til­skip­ana sem er aðeins 0,1 pró­sent sam­an­borið við 0,5 pró­sent áður. Inn­leið­ing­ar­halli reglu­gerða sé nú 1,1 pró­sent en hafi verið 0,1 pró­sent áður. 

Enn fremur dregur úr inn­leið­ing­ar­halla í Liechten­stein en 0,7 pró­sent til­skip­ana hafa ekki verið inn­leiddar sam­an­borið við 1,3 pró­sent áður. „Síðar í sumar mun Fram­kvæmda­stjórn Evr­ópu­sam­bands­ins birta frammi­stöðu­mat ríkja Evr­ópu­sam­bands­ins. Upp­færð útgáfa frammi­stöðu­mats ESA, með sam­an­burði við öll ríki EES svæð­is­ins, verður birt á sama tíma,“ segir í til­kynn­ing­unn­i. 

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent