Fimm talmeinafræðingar til grunnskóla borgarinnar

Reykjavíkurborg hefur ráðið fimm nýútskrifaða talmeinafræðinga til að þjónusta skóla borgarinnar. Ráðning þeirra á að stórbæta þjónustu við börn með tal- og málþroskavanda og gera hana markvissari.

Skóli
Auglýsing

Reykja­vík­ur­borg hefur ráðið fimm nýút­skrif­aða tal­meina­fræð­inga til að þjón­usta skóla borg­ar­inn­ar. Ráðn­ing þeirra á að stór­bæta þjón­ustu við börn með tal- og mál­þroska­vanda og gera hana mark­viss­ari. Algeng­asta ástæða þess að leitað er til tal­meina­fræð­inga er seinkun á mál­þroska eða fram­burð­ar­frá­vik.

Á árinu 2017 var sam­þykkt fjár­veit­ing til að ráða tal­meina­fræð­inga í öll hverfi borg­ar­innar og einnig hegð­un­ar­ráð­gjafa á grunn­skóla­stigi með fyr­ir­mynd í því sem gert hefur verið á leik­skóla­stig­inu.

Fyrsta árið verður lögð áhersla á að styðja þá með hand­leiðslu og skipu­leggja hvernig þeir muni gagn­ast skóla­kerf­inu sem best. Þeir munu fyrst um sinn hafa starfs­að­stöðu í Þjón­ustu­mið­stöð Vestu­bæj­ar, Mið­borgar og Hlíða en vera í nánu sam­bandi við skóla­þjón­ustu í þeim hverfum sem þeir sinna. Eftir ár verða verk­efni og stað­setn­ing þeirra end­ur­met­in.

Auglýsing

Skotur hefur verið á tal­meina­fræð­ingum í gegnum tíð­ina á land­inu og eitt af umkvört­un­ar­efnum bæði kenn­ara og leik­skóla­kenn­ara að hafa ekki nægt aðgengi að slíkum fyrir skóla­börn. For­eldrar hafa einnig getað þurft að bíða fleiri mán­uði eða upp undir ár eftir tíma hjá tal­meina­fræð­ingi fyrir börn sín. Slík töf er af sér­fræð­ingum sögð geta haft áhrif á lestr­ar­nám og félags­færni, reyndar á grunn fyrir allt nám barna sem eiga við vanda að etja.

Á heima­síðu Félags tal­meina­fræð­inga á Íslandi kemur fram að erf­ið­leikar í sam­bandi við mál, tal og tjá­skipti geti komið fram hjá fólki á öllum aldri. Tal­meina­fræð­ingar vinna við grein­ingu og íhlutun á mál- og tal­mein­um, auk kyng­ing­ar­tregðu. Dæmi um vanda sem tal­meina­fræð­ingar sinna eru mál­þroska­rösk­un, fram­burð­ar- og hljóð­kerf­is­rask­an­ir, stam, radd­veil­ur, tján­ing­ar­erf­ið­leika eftir heila­blóð­fall og kyng­ing­ar­tregða. Einnig meta þeir þörf fyrir og veita þjálfun í óhefð­bundnum tjá­skipta­leið­um. Ráð­gjöf er mik­il­vægur þáttur í starfi tal­meina­fræð­inga.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent